Hvað er í ábyrgð og hversu lengi gildir hún?
Ábyrgðin gildir eins lengi og upp er gefið fyrir hverja vöru fyrir sig. Ábyrgðin tekur gildi á kaupdegi og sýna þarf kvittun fyrir upprunalegum kaupum við skil á vörunni. Ef ábyrgð er ekki tilgreind á vöru gildir 2ja ára almenn ábyrgð.
Hvað mun IKEA gera til að leysa málið?
IKEA mun skoða vöruna og áskilur sér rétt til þess að ákveða hvort ábyrgðin gildir fyrir hvert einstakt tilfelli. Ef ábyrgðin er samþykkt mun IKEA sjá um og ákveða að hvort gert er við vöruna eða henni skipti út fyrir sömu vöru eða sambærilega. Þetta á aðeins við ef varan er aðgengileg fyrir viðgerð og án þess að sérstakur kostnaður þurfi að koma til. Þetta gildir ekki ef viðgerð hefur farið fram án samþykkis IKEA. Vörum/hlutum sem er skilað verða eign IKEA. Ef varan er ekki lengur í sölu hjá IKEA, mun IKEA útvega aðra samsvarandi vöru. IKEA áskilur sér allan rétt til að ákveða hverju sinni hvað er viðeigandi og samsvarandi vara.
Ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðin nær ekki yfir venjulega notkun, slit, rispur og aðrar skemmdir sem til koma vegna slyss eða þungra högga. Ábyrgðin gildir ekki ef vörur hafa verið geymdar, settar saman eða uppsettar á rangan hátt, notaðar á óviðeigandi hátt, notaðar á rangan hátt, þeim hefur verið breytt eða hreinsaðar með röngum efnum eða aðferðum. Ábyrgðin gildir ekki ef vara hefur verið geymd utandyra, í röku umhverfi eða varan notuð til atvinnureksturs (nema annað komi fram).
Ábyrgðin gildir eingöngu fyrir þann aðila sem kaupir vöruna upprunalega í IKEA. Hún færist ekki milli eigenda.
Meðhöndlun
Fylgdu vandlega leiðbeiningum um samsetningu og meðhöndlun.
Almenn réttindi
Þessi ábyrgð veitir þér tiltekin réttindi. Þessi ábyrgð hefur á engan hátt áhrif á lagaleg réttindi þín.
Hafðu samband
Hringdu í síma 520-2500, sendu okkur tölvupóst á IKEA(hjá)IKEA.is eða komdu í verslunina að Kauptúni 4, 210 Garðabæ.
GALANT -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á einingum í GALANT línunni. 2 ára ábyrgð er á rafbúnaði í rafdrifnum borðum. Ábyrgðin gildir frá þeim degi sem varan er keypt í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum.
EFFEKTIV -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á öllum einingum í EFFEKTIV línunni. Ábyrgðin gildir frá þeim degi sem varan er keypt í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum.
BESTÅ -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð nær til galla í efni og framleiðslu á BESTÅ einingunum (öllum vörum), FRAMSTÅ einingunum (öllum vörum) og eftirtöldum einingum í INREDA línunni: skúffur, 60x40 cm skúffur án framhliða, 60x49 cm skúffur án framhliða, 60x7x40 cm skúffur án framhliða, 60x40 cm útdraganlegar skúffur, 60x49 cm útdraganlegar skúffur, útdraganlegaur rammi, 26x16 cm aukahilla, 56x16 cm aukahilla og 56x36 cm aukahilla. Þessi ábyrgð nær aðeins til heimilisafnota. Það sem ekki felllur undir ábyrgðina eru allar INREDA vörur sem ekki eru taldar upp hér að ofan.
MARKUS, VOLMAR -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð nær yfir galla í efni og framleiðslu á eftirfarandi hlutum: Stólgrind, stillingum.
TUNDRA -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð á daglegri notkun. Við eðlilega meðhöndlun og notkun á gólfið ekki að eyðast upp, það á ekki að upplitast í sólarljósi og blettir eiga ekki að festast í því. Ábyrgðin gildir frá þeim degi sem varan er keypt í IKEA. U
EKTORP, KARLSTAD, ARILD -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á neðangreindum vörutegundum. Ábyrgðin gildir frá og með þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ábyrgðin nær eingöngu yfir heimilisafnot og gildir á þessum vörum:
Sófagrind - Botnáklæði/styrktarefni - Fætur - Festingar - Armbríkur - Fylling - PIXBO HÅVET dýnur
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina eru tauáklæði sem seld eru sér, KARLSTAD púðar, seldir sér, EKTORP púðar, seldir sér, EKTORP JENNYLUND hægindastóll, EKTORP TULLSTA hægindastóll, EKTORP MUREN hægindastóll, EKTORP BROMMA skemill.
POÄNG -Hvað er í ábyrgð?
25 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á neðangreindum einingum. Ábyrgðin gildir frá og með þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ábyrgðin nær eingöngu yfir heimilisafnot og gildir á þessum vörum:
Stólgrind úr límtré - Festingar - Styrktarefni - POÄNG stólgrind fyrir hægindastól og POÄNG fótskemilsgrind.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina eru POÄNG púðar og POÄNG áklæði.
IKEA STOCKHOLM -Hvað er í ábyrgð?
25 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á neðangreindum einingum. Ábyrgðin gildir frá og með þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ábyrgðin nær eingöngu yfir heimilisafnot og gildir á þessum vörum:
Rammi - Festingar - Fætur - Leður - Armbríkur - Botnáklæði/styrktarefni - Fylling - IKEA STOCKHOLM 3ja sæta leðursófi - 3,5 sæta tausófi og stólgrind fyrir 1,5 sæta hægindastól.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina eru IKEA STOCKHOLM áklæðin fyrir 3,5 sæta tausófa og 1,5 sæta hægindastól. Ábyrgðin gildir ekki fyrir aðrar IKEA STOCKHOLM vörur.
GODMORGON -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð nær yfir galla og efni í framreiðslu á eftirfarandi hlutum: GODMORGON vaskaskápum, veggskápum, speglaskápum og háum skápum. Ábyrgðin á eingöngu við heimilisafnot.
SULTAN -Hvað er í ábyrgð?
25 ára ábyrgð á daglegri notkun gildir frá og með þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ábyrgðin nær eingöngu yfir heimilisafnot og nær yfir galla í efni og framleiðslu á neðangreindum einingum í SULTAN dýnum og dýnubotnum:
Viðarrammar og gormar í boxdýnum - Gormar í springdýnum - Svampkjarnar í svampdýnum - Latexkjarnar í latexdýnum - Viðarrammar og rimlabotnar í dýnubotnum - Á rafmagnsbúnaði í stillanlegum rúmum er 5 ára ábyrgð á daglegri notkun.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina eru allar yfirdýnur; SULTAN TIMAN, SULTAN TOLG, SULTAN TORSMO, SULTAN TUVEBO, SULTAN TYNSET, rimlabotnar SULTAN LADE, barnadýnur; SULTAN DRÖMMA, SULTAN SNARKA, SULTAN BLUNDA, SULTAN SUSSA, SULTAN SLUMRA.
PAX/KOMPLEMENT -Hvað er í ábyrgð?
10 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á neðangreindum PAX/KOMPLEMENT fataskápum og aukahlutum. Ábyrgðin gildir frá og með þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þar að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ábyrgðin nær eingöngu yfir heimilisafnot og gildir á þessum vörum:
Skáparammar - Hurðir - Lamir - Festingar fyrir rennihurðir - Skúffubrautir - Hillur og fataslár.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina eru KOMPLEMENT vírkörfur, KOMPLEMENT plastkassar og taukassar, KOMPLEMENT útdraganlegar hillur úr gegnsæju plasti, KOMPLEMENT buxnahengi og KOMPLEMENT skórekkar.
FAKTUM/RATIONELL -Hvað er í ábyrgð?
25 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á neðangreindum eldhúseiningum. Ábyrgðin gildir frá og með þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ábyrgðin nær eingöngu yfir heimilisafnot og gildir á þessum vörum:
Í FAKTUM eldhúsinnréttingu gildir ábyrgðin fyrir: Skáparamma - INTEGRAL lamir - RATIONELL fullútdraganlegar skúffur - RATIONELL hillur úr hertu gleri og melamín - RATIONELL vírkörfur - Fætur - RATIONELL botnhillur fyrir neðri skápa - RATIONESS skúffur undir ofna - RATIONELL neðri skúffur (við gólf) - RATIONELL uppþvottagrindur fyrir veggskápa.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina eru: Framhliðar - Vaskar - Hnúðar - Höldur - Borðplötur - Sökklar - Hliðarklæðningar - Skrautlistar og PERFEKT hillur og vínhillur.
Heimilistæki - Hvað er í ábyrgð?
5 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir framleiðslugalla í heimilistækinu eða galla í efni sem kemur í ljós eftir að kaupin hafa átt sér stað í IKEA. Ábyrgðin gildir aðeins fyrir tæki til heimilisafnota. Á meðan vara er í ábyrgð mun allur kostnaður verða greiddur vegna viðgerðar, varahluta, vinnu, sem og ferðakostnaðar fyrir viðgerðarmenn. Þetta á aðeins við ef vara er aðgengileg fyrir viðgerð og án þess að sérstakur kostnaður vegna þess þurfi að koma til.
Ábyrgðin á „for IKEA from Whirlpool“ gildir í 5 ár frá þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ef viðgerð fer fram á meðan varan er enn í ábyrgð framlengist hún ekki á heimilistækinu eða þeim hlutum sem skipt er út.
Ábyrgðin gildir fyrir öll „for IKEA from Whirlpool“ heimilistæki nema LAGAN, sem eru með 2ja ára ábyrgð. IKEA og umboðsaðili Whirlpool á Íslandi munu sjá um þjónustuna.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina er:
Slit sem kemur til vegna venjulegrar notkunar - Skemmdir sem verða vegna slæmrar meðhöndlunar - Skemmdir sem eru framkvæmdar viljandi - Skemmdir sem verða vegna vanrækslu á að fylgja leiðbeiningum - Röng uppsetning eða tækinu er stungið í samband við ranga rafspennu - Skemmdir sem verða vegna (eitur)efna, ryðskemmdir, tæring vegna ryðs eða vatnsskemmdir og skemmdir sem verða við óeðlilegar aðstæður - Annar varningur eins og rafhlöður og ljós - Hlutir sem eru til skrauts og sem hafa engin áhrif á venjulega virkni tækisins - Þetta á einnig við um litamismun og rispur - Skemmdir sem geta komið til vegna annarra hluta eða efnis, vegna hreinsunar eða opnunar á sápuhólfi, afrennslis eða síu - Skemmdir á eftirfarandi hlutum: keramíkgleri, fylgihlutum, leirtaui, hnífapörum, körfum, afrennslisrörum, innsiglum, ljósum, ljóshlífum, hlífum, hnúðum, umgjörðum og öðrum hlutum í umgjörðinni - Tilfelli þar sem engin bilun fannst þegar viðgerðarmaður skoðaði tækið - Viðgerðir sem EKKI hafa farið fram að viðurkenndum umboðsaðilum eða aðrir varahlutir notaðir sem eru ekki frá umboðsaðila - Viðgerðir sem þarf að framkvæma vegna rangrar uppsetningar - Ef tækið er notað til annars en heimilisnota, þ.e. fyrir hvers konar atvinnustarfsemi.
Eldhúsblöndunartæki -Hvað er í ábyrgð?
5 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á öllum eldhúsblöndunartækjum sem seld eru í IKEA, nema LAGAN blöndunartækjum. Ábyrgðin gildir frá og með þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. Upphafleg kvittun þarf að fylgja með sem sönnun fyrir kaupunum. Ábyrgðin nær eingöngu yfir heimilisafnot.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina er venjuleg notkun, slit, rispur og aðrar skemmdir sem koma til vegna slyss eða annarra þungra högga.
Fylgdu vandlega leiðbeiningum um samsetningu, uppsetningu og meðhöndlun. Ábyrgðin nær ekki yfir vörur/einingar sem hafa verið geymdar, settar saman eða uppsettar á rangan hátt, notaðar á óviðeigandi hátt, notaðar á rangan hátt, þeim hefur verið breytt eða hreinsaðar með röngum efnum eða aðferðum. Ábyrgðin gildir ekki ef varan hefur verið notuð fyrir almenning, utandyra eða notuð við erfiðar aðstæður. Ábyrgðin nær ekki yfir einstök tilvik sem leitt hafa til skemmda.
Baðherbergisblöndunartæki -Hvað er í ábyrgð?
5 ára ábyrgð á daglegri notkun nær yfir galla í efni og framleiðslu á öllum baðherbergisblöndunartækjum sem seld eru í IKEA.
Það sem ekki fellur undir ábyrgðina ef vörurnar hafa verið notaðar í tærandi umhverfi, vatns- og orkusparandi búnaður.