Að vinna hjá IKEA

IKEA er ekki bara venjulegur vinnustaður!

Hjá IKEA er unnið eftir ákveðnum „IKEA gildum“ sem eiga að einkenna alla starfsemi fyrirtækisins. Þessi gildi eru m.a. heiðarleiki, jákvæðni, einfaldleiki, fjölbreytni, hlýleiki og umfram allt sænsk jafnaðarhyggja.

Þessi gildi endurspeglast í því starfsumhverfi sem stuðlað er að hjá fyrirtækinu.

Lagt er upp úr því að starfsmenn tileinki sér jákvæða samskiptahætti, að góðu upplýsingaflæði sé viðhaldið, sveigjanleiki sé til staðar í starfi, gagnkvæm virðing, að uppruni og þjóðerni fólks sé virtur og fagleg stjórnun sé einkennandi.

Þegar kemur að starfsþróun þá gefst  starfsmönnum tækifæri á að sitja ýmis námskeið, eiga möguleika á tilfærslu í starfi og taka virkan þátt í skemmtilegri uppbyggingu og viðburðum.