Almennir skilmálar

Almennir skilmálar

Vörurnar okkar eru hannaðar til að uppfylla strangar alþjóðlegar kröfur um gæði og endingu. Gæðaprófanir eru byggðar á raunverulegum aðstæðum en það er hluti af stefnu IKEA hvað varðar góða hönnun á lágu verði.

Ábyrgð gildir eins lengi og upp er gefið fyrir hverja vöru fyrir sig. Ábyrgðin tekur gildi á kaupdegi.

Þú mátt líka skipta um skoðun. Betri skipti- og skilaréttur á ónotuðum vörum þýðir meira frelsi fyrir þig.

Verðið í IKEA vörulistanum á að vera það sama og í IKEA versluninni. Það hefur þótt sjálfsögð neytendavernd að tryggja óbreytt verð í eitt ár frá útgáfu hvers vörulista. Við munum gera allt sem hægt er til að svo verði áfram, þrátt fyrir óvissu sem ríkir í efnahags- og gengismálum þjóðarinnar. Stærsta hagsmunamál okkar er að þú getir ávallt gengið að gæðavöru fyrir heimilið þitt á sanngjörnu verði.
Þú getur einnig treyst því, að reynast verðhækkanir með öllu óhjákvæmilegar, munum við lækka verðið aftur um leið og svigrúm myndast.

Verslað á netinu

Ef þú kemst ekki til okkar er hægt að versla á vefsíðunni, senda tölvupóst eða hringja í okkur.
Á vefsíðunni er að finna flestar af þeim vörum sem fást í versluninni og hægt er að ganga frá kaupum með því að smella á „Setja í körfu“. Þá færist varan sjálfkrafa í innkaupakörfu sem staðsett er ofarlega til hægri á síðunni. Alltaf er hægt að skoða körfuna eða velja að ganga frá kaupum.

Athugið að verð, myndir og vörulýsingar á netinu og í vörulista eru birtar með fyrirvara um villur. Þegar vara er merkt „Er að klárast“ er orðið það lítið eftir af henni í birgðum að ekki er hægt að tryggja að hún sé til þegar gengið er frá netpöntun eða þegar komið er í verslunina. Á opnunartíma er alltaf hægt að fá nánari upplýsingar um birgðastöðu með því að hringja í þjónustuverið í síma 520 2500 eða senda tölvupóst á ikea(hjá)ikea.is