5 appelsínur
1 kg. sykur
vatn
Aðferð:
Skerið appelsínur með hýði í báta og sjóðið klukkustund í vatninu svo aðeins fljóti yfir appelsínurnar. Maukið í matvinnsluvél og sjóðið aftur með sykrinum í smástund.
1 kg appelsínur
2 stk. sítrónur
250 gr apríkósur
1 kg sykur
Aðferð:
Þvoið appelsínur og sítrónur.
Hakkið appelsínur, sítrónur og aprikósur.
Ef appelsínurnar eru með þykkum berki er hvíti hlutinn skorinn burt (hýðið tekið af með flysjara).
Blandið sykri saman við og sjóðið við vægan hita í 20 mínútur.
Látið vínsýru saman við, ef óskað er til að auka geymsluþol.
Sett í heitar hreinar krukkur og lokað með þéttu loki.