Það er engin tilviljun að IKEA vörumerkið er blátt og gult því að það eru litir sænska fánans.
Í Svíþjóð spila náttúran og heimilið stórt hlutverk í daglegu lífi fólks.
Í raun er náttúran besta leiðin til að lýsa sænskum húsbúnaði – fullur af léttleika og ferskum blæ, þó óþvingaður og látlaus.
Á seinni hluta áttunda áratugarins blönduðu listamennirnir Carl og Karin Larsson saman sígildum áhrifum og hlýlegum sænskum alþýðustíl. Þau sköpuðu fyrirmyndina að sænskum hönnunarstíl sem nú er heimsfrægur.
Í kringum 1950 þróaðist módernismi og nýtistefna á sama tíma og Svíþjóð kom á fót jafnréttisþjóðfélagi. Þessi áhrif koma greinilega fram í IKEA vörunum - sem eru nýtískulegar en látlausar, hagnýtar og aðlaðandi og hannaðar fyrir venjulegt fólk og ekki síst börnin.
Margir tengja Svíþjóð við ferskt og heilbrigt líferni.
Þessi sænski lífsstíll endurspeglast í IKEA vörunum. Ferskleiki víðáttunnar endurspeglast í þeim litum og efniviði sem notaður er: ljós viður, náttúruleg efni og ómeðhöndlaður gegnheill viður, og þar sem loftslagið er kalt og dimmt meirihluta ársins skapa vörurnar létta og bjarta stemningu á heimilinu allt árið um kring.
IKEA hugmyndafræðin - eins og stofnandi fyrirtækisins - fæddist í Smálöndunum í Svíþjóð. Þetta er sá hluti Suður Svíþjóðar þar sem jarðvegurinn er takmarkaður og snauður. Fólkið þar er þekkt fyrir að vinna mikið, lifa hógværu lífi og nota gáfurnar í að gera sem mest úr þeim takmörkuðu auðlindum sem það hefur. Þessi lífsmáti er þungamiðjan í þeirri hugmynd IKEA að halda verðinu lágu.
Gæðum er þó ekki fórnað á kostnað verðsins.
Svíþjóð hefur orð á sér á alþjóðavettvangi fyrir öryggi og gæði sem hægt er að reiða sig á og IKEA verslanirnar eru stoltar af því að geta boðið gæðavöru við öll tækifæri.
IKEA var stofnað þegar Svíþjóð var á hraðri leið með að verða fyrirmyndaþjóðfélag sem hugsaði jafnt um ríka sem fátæka. Þessi stefna fellur vel að hugsjónum IKEA. Í þeirri viðleitni sinni að búa sem flestum þægilegra hversdagslíf býður IKEA viðskiptavinum sínum að vinna með sér. Vörurnar eru barnavænar og uppfylla þarfir allrar fjölskyldunnar, ungra sem aldinna. Saman getum við skapað þægilegra hversdagslíf fyrir alla!