Chilisulta

2 rauðar paprikur
5 rauðir chilibelgir (má setja fleiri fyrir bragðmeiri sultu)
300 gr. sykur
150 ml. edik
1/2 poki gulur sultuhleypir (einnig er hægt að nota bláan og nota þá helmingi minni sykur)

Aðferð:
Skerið papriku og chili gróft, setjið í matvinnsluvél og hakkið smátt. Blandið sykri og ediki við. Setjið blönduna í pott ásamt hleypinum og sjóðið í 5-7 mín. Látið kólna örlítið og hellið svo í krukkur. 

Chilisulta með eplum

500 gr paprika 
5 ferskir chíli pipar 
2 epli 
500 gr sykur eða hrásykur 
2 tsk sultuhleypir 

Aðferð:
Hreinsið og saxið allt hráefnið og setjið í pott. það tekur u.þ.b. 30-40 mín. að sjóða þetta í mauk, hrærið í annað slagið. Gott er að sigta og setja aftur í pottinn og látið suðuna koma upp þá er sultuhleypinum bætt út í.