1 1/2 kg. epli
1 ananas
5 sítrónur
2 kg. sykur
Aðferð:
Afhýðið eplin og ananasinn, takið úr þeim kjarnann og sneiðið þau. Rífið börkinn á sítrónunum og geymið safann. Setjið ávextina í pott ásamt sítrónuberki og safa. Látið sjóða varlega í 15 mínútur eða þar til ávextirnir eru mjúkir. Bætið sykri í, hrærið þar til hann er uppleystur. Setjið í heitar hreinar krukkur og lokið með þéttu loki. geymist í 3-4 mánuði.