200 gr smjör
250 gr púðursykur
1 dl hunang
3 egg
600 gr hveiti
4 tsk lyftiduft
1 tsk engiferduft
1 tsk negull
1 msk kanill
4 epli, rifin
2 epli í bátum
1 dl eplasafi
Aðferð:
Byrjið á því að blanda saman smjöri, sykri og hunangi.
Bætið eggjunum út í og blandið svo þurrefnunum varlega saman við.
Blandið eplasafa og rifnum eplum út í.
Setjið í form og raðið eplabátum ofan á.
Bakið við 160°C í u.þ.b. 50 mín.