Það kostar ekkert að gerast meðlimur í IKEA FAMILY og ekkert því til fyrirstöðu að þú skráir þig og byrjir strax að njóta þeirra fríðinda sem felast í aðildinni.
IKEA FAMILY er verslun inni í IKEA. Þú finnur IKEA FAMILY vörulínuna á einum stað í IKEA versluninni.
Á heimsíðunni okkar geturðu skoðað allar vörur í IKEA FAMILY vörulínunni.
Verndaðu heimilið þitt og alla íbúana – bæði heima og að heiman
Í öryggislínu IKEA FAMILY eru vörur sem hjálpa þér að tryggja öryggi fjölskyldumeðlima. Það er notalegt til þess að vita að þú og þínir séuð öruggari við leik og störf á heimilinu. Þú finnur meðal annars reykskynjara og skyndihjálpartösku sem gott er að grípa í. Auk þess eru fjölmargar vörur sem tryggja öryggi barnanna á heimilinu eins og barnavaktari, öryggishlið og innstunguhlífar. .
Slakaðu á og endurnærðu líkama og sál með IKEA FAMILY slökunarvörum
Stundum þarftu að bara slaka á. Svo einfalt er það. IKEA FAMILY er tilbúið að aðstoða þig. Í vörulínunni finnur þú allt frá sturtusápu til baðsloppa sem hjálpa þér að njóta sem best þeirra sjaldgæfu stunda sem þér gefast til að slaka á. Láttu renna í heitt bað og dekraðu við sjálfa/n þig. Velferð þín er okkur mikilvæg, rétt eins og húsgögnin á heimili þínu.
Finnst þér gaman að ferðast?
Núna getur þú tekið IKEA FAMILY vörurnar með þér á vit ævintýranna. Vörurnar eru bæði flottar og þægilegar og eru allar búnar sniðugum kostum sem gera ferðalögin einfaldari og notalegri.