Þarftu að breyta, bæta eða endurnýja á vinnustaðnum þínum?
Ertu að stofna fyrirtæki og vantar þig innréttingar?
Vantar þig kannski betri biðstofu fyrir sjúklingana eða huggulegri kaffistofu fyrir starfsfólkið?
Stendur þú jafnvel í stórræðum á heimilinu þínu og vilt gera hagstæð kaup á innréttingum og húsgögnum?
Við getum hjálpað þér.
Í IKEA færð þú innréttingar, húsgögn og alls kyns fylgihluti fyrir allar gerðir fyrirtækja, skrifstofa og heimila. Fyrirtækjaþjónusta IKEA sér um að aðstoða þig við valið og að gera viðskipti þín þægilegri og fljótlegri. Þannig hjálpum við þér að spara bæði tíma og fyrirhöfn – og að sjálfsögðu peninga.
Ókeypis ráðgjöf
Fyrirtækjaþjónustan býður þér ókeypis ráðgjöf við val á innréttingum og öðrum lausnum sem henta þér.
Persónuleg þjónusta
Fyrirtækjaþjónustan heldur utan um öll samskipti þín við IKEA og sér til þess að allt
gangi vel fyrir sig -frá því að þú fyrst hefur samband við okkur þar til þú færð vöruna í hendur.
Teikniþjónusta
IKEA starfrækir öfluga teikniþjónustu þar sem hægt er að fá skipulagðar skrifstofur og innréttingar í alls konar húsnæði – þér að kostnaðarlausu. Athugið að það getur tekið allt að 10 daga að fá teikningar.
Með IKEA Home Planner teikniforritinu getur þú líka hannað og skipulagt sjálf/ur eldhús- og borðstofurýmið sem þú hefur.
Heimsending og samsetning
Við getum útvegað bæði heimsendingar- og samsetningarþjónustu á sanngjörnu verði.
Hagkvæmar lausnir
Við vinnum út frá heildarmyndinni, allt frá kaffibollum til fullgerðra innréttinga
Hafðu samband
Frekari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónustan í símum 520-2525 og 820-2526, eða á netfanginu sala(hjá)ikea.is.
Guðrún Hlín og Drífa eru við alla virka daga kl. 9-17.
