Heimsendingarþjónusta

Þú velur þá þjónustu sem þú vilt greiða fyrir.
Flestar IKEA vörur eru í flötum pakkningum til að auðvelda þér að koma þeim heim. Ef þú þarft aðstoð við að koma vörunum þínum heim, þá getur þú hringt á skutlu þegar þér hentar eða fengið vöruna senda heim með heimsendingarþjónustu IKEA gegn sanngjörnu gjaldi. Hægt er að panta skutlu í gjaldfrjálsum síma við útganginn.


Til að tryggja hagkvæmni heimsendinga óskum við eftir þínu samstarfi vegna eftirfarandi:

Tryggið að einhver sé heima á þeim tíma sem vörusendingin á að koma og við viljum taka fram að heimsendingabílstjórarnir eru einir á ferð og þess vegna þarf viðtakandi að tryggja að annar burðarmaður sé á staðnum ef varan er stór.
Sé þetta skilyrði ekki uppfyllt áskilur flutningsaðili sér rétt til að flytja vöruna aftur til IKEA á kostnað kaupanda.
Ef viðtakandi óskar eftir auka burðarmanni þarf hann að tilkynna það við pöntun á heimsendingu. IKEA útvegar þá auka burðarmann sem viðtakandi greiðir fyrir samkvæmt gjaldskrá skutlu.

Vara verður að geta komist inn í húsnæðið í pakkningunni. 

Ef flytja þarf vöruna upp stigagang eða með lyftu þarf að tryggja að rými sé nægt og að hlutir séu ekki fyrir.

Tryggja þarf að hlutir séu ekki í gangveginum, s.s. skápar, myndir, lampar eða aðrar hindranir.


Heimsendingar innanbæjar

Við bjóðum upp á 2 ferðir á dag sem þýðir að þú getur valið þann tíma sem hentar þér best og þú færð vöruna innan 2 klst. eftir að hún fer út úr húsi frá okkur. 

Á virkum dögum er hægt að velja um heimsendingar á milli kl. 14-16 og 17-20.

Um helgar er hægt að velja um heimsendingar á milli kl. 14-16 og 17-19.

Síðasta heimkeyrslan getur tekið allt að 3 klst. Athuga skal að heimsendingu þarf að greiða minnst 1 klst. áður en hún fer út úr húsi.


Heimsendingar út á land

Í samstarfi við Flytjanda, innanlandsflutningadeild Eimskips og Íslandspóst, bjóðum við upp á vörusendingar á landsbyggðina.

Flutningsgjald Flytjanda er greitt um leið og vörurnar hjá IKEA en Íslandspóstur innheimtir burðargjald við móttöku.

Greitt er samkvæmt gjaldskrá Flytjanda (www.flytjandi.is) og viðskiptavinir IKEA fá 6% afslátt af gjaldskrá.

Sendingar eru fluttar í vöruhús flutningsaðila og greiða þarf aukagjald skv. þeirra verðskrá ef óskað er eftir því að fá vörurnar heim að dyrum.

Við kappkostum að afgreiða vöruna eins fljótt og hægt er út úr húsi.