Hindberjasulta með kókos

1 kg hindber
500 gr sykur 
2 msk kókosmjöl
4 msk kókoslíkjör (má sleppa)

Aðferð:
Ber og sykur sett í pott og soðið við vægan hita í 2-3 mínútur, hrært vel í á meðan.
Froða fleytt ofan af og kóskosmjöli og líkjör, ef hann er notaður, bætt saman við. 
Hellt strax í heitar og hreinar krukkur. Geymist í kæli.