Okkur er ekki vel við langar biðraðir
Við erum nokkuð viss um að þér er ekki heldur vel við þær.
Við reynum að hafa eins marga afgreiðslukassa opna og mögulegt er á hverjum tíma til að halda röðunum stuttum. Það er samt ýmislegt sem þú getur gert til að hjálpa:
- Raðaðu því sem þú ætlar að kaupa, einu í einu, á afgreiðsluborðið þannig að strikamerkið snúi að afgreiðslumanneskjunni.
- Hafðu stóru hlutina á lagerkerrunni svo að þú meiðir þig ekki í bakinu. Passaðu bara að strikamerkið snúi að afgreiðslumanneskjunni.
Nýverið tókum við í notkun sjálfsafgreiðslukassa sem hægt er að nota ef greitt er með kreditkorti með örgjörva.
Við tökum ekki við demöntum
Hins vegar eru ýmsar aðrar greiðslur í góðu lagi hjá okkur.
Hjá IKEA getur þú greitt með reiðufé, debetkorti eða kreditkorti. Við bjóðum upp á VISA og MasterCard lán til greiðsludreifingar í allt að 36 mánuði og þá bætist lántökugjald og vextir ofan á staðgreiðsluverðið (skv. verðskrá kortafyrirtækjanna).
Einnig er boðið uppá vaxtalaust VISA lán/MasterCard staðgreiðslulán í hámark 5 mánuði.
Okkur er ekki vel við fyrirferðamikla hluti
Það er ein ástæðan fyrir því að við búum til flatar pakkningar.
Ef þú kemur ekki vörunum í bílinn þinn getum við útvegað þér heimsendingu á sanngjörnu verði. Sölufólk okkar í deildunum sér um að ganga frá því ef þú vilt. Einnig er hægt að kaupa heimsendingu við hliðina á vöruafgreiðslunni sem er staðsett við útgang verslunarinnar.
Engin tímamörk á skilafresti
Ef þú skiptir um skoðun getur þú skilað vörunni aftur til okkar, hvort sem hún er samsett, í pakkningu eða ekki.
Engin tímamörk eru á því hvenær vöru er skilað svo fremi sem hægt er að finna verðið í gagnagrunni okkar.
Öruggar netgreiðslur
Þegar þú ákveður að ganga frá pöntun með greiðslukorti á heimasíðunni fer hún inn í læst umhverfi þar sem öll samskipti frá þér til IKEA fara um svokallaðar öruggar línur sem nýta sér SSL öryggisvottuð samskipti.
SSL vottun er trygging þín fyrir því að þjónusta IKEA standist þær kröfur sem settar eru til öruggra vefsvæða. Grundvallaratriði SSL-tækninnar er að tryggja að skilaboð frá einni tölvu til annarrar séu ekki berskjölduð á leið sinni um netið.