Hvernig kem ég vörunum heim?

Í IKEA verði leynist aldrei aukakostnaður

Þú velur þá þjónustu sem þú vilt greiða fyrir.
Flestar IKEA vörur eru í flötum pakkningum til að auðvelda þér að koma þeim heim. Ef þú þarft aðstoð við að koma vörunum þínum heim, þá getur þú hringt á skutlu þegar þér hentar eða fengið vöruna senda heim með heimsendingarþjónustu IKEA gegn sanngjörnu gjaldi. Hægt er að panta skutlu í gjaldfrjálsum síma við útganginn.

Til að tryggja hagkvæmni heimsendinga óskum við eftir þínu samstarfi vegna eftirfarandi:

Tryggið að einhver sé heima á þeim tíma sem vörusendingin á að koma. Þegar pöntuð er heimsendingarþjónusta frá IKEA er hægt að velja á milli eftirfarandi leiða:

Leið 1.  Frá IKEA að (ytri) útidyrum viðskiptavinar. Í fjölbýli er átt við að húsi/útidyrum á fjölbýlinu sjálfu, ekki útidyrum íbúðar. Einn maður á bíl og þess vegna þarf viðtakandi að tryggja að burðarmaður/menn séu á staðnum sé varan stór. Sé þetta skilyrði ekki uppfyllt áskilur flutningsaðili sér rétt til að flytja vöruna aftur til IKEA á kostnað kaupanda. Bílstjórinn aðstoðar ekki en kemur vörunni  út fyrir lyftu á bíl. 
Verð 3.800,-   0-200kg 
Verð 5.200,-    200kg+

Leið 2.   Frá IKEA til viðskiptavinar, alla leið. Bíll með tveimur mönnum sem sjá um að koma vörunni  inn á stofugólf viðskiptavinar.
Verð 7.500,- 0-200kg 
Verð 8.100,-   200kg+

Vara verður að geta komist inn í húsnæðið í pakkningunni. 

Ef flytja þarf vöruna upp stigagang eða með lyftu þarf að tryggja að rými sé nægt og að hlutir séu ekki fyrir.

Tryggja þarf að hlutir séu ekki í gangveginum, s.s. skápar, myndir, lampar eða aðrar hindranir.


Heimsendingar innanbæjar

Við bjóðum upp á 2 ferðir á dag sem þýðir að þú getur valið þann tíma sem hentar þér best og þú færð vöruna innan 2 klst. eftir að hún fer út úr húsi frá okkur. 

Á virkum dögum er hægt að velja um heimsendingar á milli kl. 14-16 og 17-20.

Um helgar er hægt að velja um heimsendingar á milli kl. 14-16 og 17-19.

Síðasta heimkeyrslan getur tekið allt að 3 klst. Athuga skal að heimsendingu þarf að greiða minnst 1 klst. áður en hún fer út úr húsi.


Heimsendingar út á land

Í samstarfi við Flytjanda, innanlandsflutningadeild Eimskips og Íslandspóst, bjóðum við upp á vörusendingar á landsbyggðina.

Flutningsgjald Flytjanda er greitt um leið og vörurnar hjá IKEA en Íslandspóstur innheimtir burðargjald við móttöku.

Greitt er samkvæmt gjaldskrá Flytjanda (www.flytjandi.is) og viðskiptavinir IKEA fá 6% afslátt af gjaldskrá.

Sendingar eru fluttar í vöruhús flutningsaðila og greiða þarf aukagjald skv. þeirra verðskrá ef óskað er eftir því að fá vörurnar heim að dyrum.

Við kappkostum að afgreiða vöruna eins fljótt og hægt er út úr húsi.