
Búðu til lista
Notaðu vörulistann og þessa heimasíðu til að leiðbeina þér þegar þú ákveður hvað þú ætlar að kaupa í versluninni.
Það eru fleiri vörur í versluninni en í vörulistanum og á heimasíðunni þannig að þú skalt skella þér í heimsókn og skoða úrvalið. Þar getur þú einnig fengið fullt af hugmyndum og innblæstri!
Ef þú hefur týnt vörulistanum þínum eða þarft sérstakar leiðbeiningar við kaup á eldhúsinnréttingum, fataskápum eða skrifstofuvörum, veitum við þér meiri upplýsingar með ánægju.
Hér á síðunni geturðu prentað út innkaupalista. Á hann geturðu sett inn þær vörur sem þú hefur áhuga á að skoða betur eða kaupa eftir að hafa flett í gegnum vörulistann eða heimasíðuna og tekið svo með þér í næstu heimsókn í verslunina.
Taktu mál
Ef þú ert að hugsa um að kaupa ný húsgögn er gott að mæla rýmið sem þú hefur. Þannig kemur þú í veg fyrir óþægindi síðar! Það er líka frábær hugmynd að koma með einfalda teikningu af herberginu eða heimilinu ef þú vilt ræða við okkur um lausnir.
Komdu til okkar
Þegar þú veist hvað þú vilt kíktu þá á leiðbeiningarnar hér að neðan um það hvar við erum til húsa. Þessar upplýsingar er einnig að finna aftast í vörulistanum okkar.
Ef þú kemur á bíl þarftu ekki að hafa áhyggjur af bílastæðum, það kostar ekkert að leggja hjá IKEA og næst versluninni eru sérmerkt bílastæði fyrir barnafjölskyldur, óléttar konur og fatlaða.
IKEA er að Kauptúni 4, 210 Garðabæ.
Verslaðu á netinu
Ef þú kemst ekki til okkar er hægt að versla á vefsíðunni, senda tölvupóst eða hringja í okkur.
Á vefsíðunni er að finna flestar af þeim vörum sem fást í versluninni og hægt er að ganga frá kaupum með því að smella á „Setja í körfu“. Þá færist varan sjálfkrafa í innkaupakörfu sem staðsett er ofarlega til hægri á síðunni. Alltaf er hægt að skoða körfuna eða velja að ganga frá kaupum.
Athugið að verð, myndir og vörulýsingar á netinu og í vörulista eru birtar með fyrirvara um villur. Þegar vara er merkt „Er að klárast“ er orðið það lítið eftir af henni í birgðum að ekki er hægt að tryggja að hún sé til þegar gengið er frá netpöntun eða þegar komið er í verslunina. Á opnunartíma er alltaf hægt að fá nánari upplýsingar um birgðarstöðu með því að hringja í þjónustuverið í síma 520 2500 eða senda tölvupóst á ikea(hjá)ikea.is