Komdu með börnin
Njóttu dagsins með fjölskyldunni í IKEA. Rétt fyrir utan aðalinnganginn eru sérmerkt bílastæði fyrir fjölskyldur með lítil börn og verðandi mæður. Njóttu þess að versla í rólegheitum á meðan börnin leika sér undir eftirliti í Smålandi. Það er líka gaman að versla saman, sérstaklega vegna þess að það má prófa og koma við allar vörurnar. Taktu þér síðan smá tíma til að endurhlaða orkuna á IKEA veitingastaðnum. Þar getur þú fengið barnasmekki, barnastóla, barnamat og aðstöðu til að hita upp pela. Við bjóðum einnig upp á sérstakan barnamatseðil og leikpláss. Þú finnur einnig ungbarnaaðstöðu á báðum hæðum og það er allt í lagi þó þú gleymir kerrunni heima, við lánum þér barnakerru á meðan þú verslar.
Prófaðu!
Komdu í heimsókn og prófaðu það sem þú vilt í versluninni okkar. Sestu í stólana og sófana, leggstu í rúmin, opnaðu skápana og skúffurnar, lokaðu aftur, kveiktu ljós og slökktu aftur. En hvernig átt þú annars að vita hvort þér líki við vöruna ef þú prófar ekki?
Skildu áttavitann eftir heima
Það er í rauninni mjög auðvelt að rata í IKEA. Hver einasta IKEA verslun er með merktum gönguleiðum í gegnum alla verslunina. Ef þú ert vanur IKEA gestur, þá eru flýtileiðir svo að þú komist hraðar þangað sem þú vilt fara. Ef þig vantar aðstoð þá mun starfsfólkið okkar leiðbeina þér með ánægju.
Sjá kort af verslun
Til aðstoðar við kaupin
Þegar þú byrjar að versla skaltu grípa með þér gulan innkaupapoka eða innkaupakerru fyrir smærri hluti. Þegar þú gengur í gegnum verslunina getur þú fengið vörulista að láni sem þú getur skoðað og einnig blýanta og rissblöð til að glósa á. Taktu þér tíma í að skoða vörurnar og njóta þess að versla.
Skoðaðu verðmiðann
Hér kemur rissblaðið að góðum notum, því að á verðmiðanum finnur þú ekki aðeins lága vöruverðið heldur einnig aðrar mikilvægar upplýsingar. Þar finnur þú nákvæmt mál, vörulýsingu og fleira. Einnig kemur þar fram hvort þú þurftir að panta vöruna hjá starfsfólki okkar eða hvort þú getur sótt hana sjálf/ur á sjálfsafgreiðslulagernum. Ef þú þarft að sækja hana sjálf/ur er betra að skrifa niður í hvaða gangi og hillu vöruna er að finna.
Saman spörum við
Það er samvinna okkar allra sem viðheldur lága verðinu. Fyrst gerum við okkar hluta. Við veljum framleiðendur sem geta framleitt gæðavörur á lágu verði og við kaupum inn í miklu magni. Svo til þess að spara flutningskostnað þá pökkum við vörunum í flatar pakkningar. Síðan gerir þú þinn hluta. Það gerir þú með því að ná í vörurnar, flytja þær heim og setja saman sjálf/ur. Saman spörum við mikið.
Kemstu ekki til okkar?
Ef þú kemst ekki til okkar er hægt að versla á vefsíðunni okkar, senda tölvupóst eða hringja í okkur.
Athugið að verð, myndir og vörulýsingar á netinu og í vörulista eru birtar með fyrirvara um villur. Þegar vara er merkt „Er að klárast“ er orðið það lítið eftir af henni í birgðum að ekki er hægt að tryggja að hún sé til þegar gengið er frá netpöntun eða þegar komið er í verslunina. Á opnunartíma er alltaf hægt að fá nánari upplýsingar um birgðastöðu með því að hringja í þjónustuverið í síma 520 2500 eða senda tölvupóst á ikea(hjá)ikea.is