Á hvaða hátt er IKEA öðruvísi?
Við bjóðum breitt vöruúrval, góða hönnun og hagnýta vöru á lágu verði. Á því byggist hugmyndafræði okkar.
Breitt vöruúrval
Í fyrsta lagi erum við með allt fyrir heimilið undir einu þaki. Hér finnur þú plöntur, stofuhúsgögn, leikföng, steikarpönnur og heilu eldhúsinnréttingarnar.
Allt sem þarf fyrir hagnýtt heimili fæst í IKEA.
Í öðru lagi bjóðum við mismunandi stíl. Rómantíska manneskjan finnur alveg jafn mikið hjá okkur og naumhyggju manneskjan. Við erum reyndar ekki mikið fyrir öfgar og yfirskreytingar. Við erum aðeins með það sem þarf til að búa sér gott heimili.
Með því að vera með samstilltar vörulínur þá er alveg sama hvaða stíl þú vilt; nýjasti hægindastóllinn gengur með sígilda bókaskápnum sem gengur með nýja stækkanlega borðinu sem gengur með hægindastólnum síðan í fyrra. Svo að þú sérð að vöruúrval okkar er breitt á marga vegu, ár eftir ár eftir ár.
Góð hönnun og hagkvæmni
Það er ekki auðvelt að sameina góða hönnun, hagkvæmni, gæði og lágt verð. Hinsvegar erum við ekki þekkt fyrir að fara auðveldustu leiðina. Það er ekkert mál að hanna rándýrt skrifborð, en að hanna gott skrifborð sem flestir hafa efni á – það geta aðeins virkilega hæfileikaríkir hönnuðir og vöruþróunaraðilar gert.
Okkur til happs er mjög hæfileikaríkt fólk að hanna og þróa vörurnar okkar. Þau vinna með framleiðendum og saman finna þau leiðir til að fá sem mest út úr hráefninu. Hönnuðirnir okkar geta nefnilega látið framleiða húsbúnað á lágu verði og samt sem áður viðhaldið upprunalegu hönnunarhugmyndinni. Snjallt, ekki satt?
Þannig sköpum við hinar einstöku IKEA vörur. Við köllum þær stundum snjöllu vörurnar vegna þess að þannig getum við einblínt á það sem skiptir máli; fólkið! Við forðumst óþarfa því það kostar peninga og viðskiptavinir okkar vilja ekki sóa peningum. Þeir kjósa snjallar lausnir sem uppfylla þarfir þeirra. IKEA vörurnar eru afrakstur viðleitni okkar til að koma til móts við þessar þarfir. Þetta er ekki auðvelt verk og kannski er það einmitt ástæðan fyrir því af hverju við erum svona einstök.
Lágt verð
Breitt vöruúrval, vel hönnuð og hagnýt vara er aðeins hálf sagan. Viðráðanlegt verð skiptir mjög miklu máli. Verðið er þriðja mikilvægasta atriðið sem við höfum að leiðarljósi til að gera lífið þægilegra fyrir sem flesta en ekki aðeins fáa útvalda.
Lágt verð er tengt þeirri ánægju að finna nákvæmlega það sem þig vantar fyrir heimilið og geta eignast það án þess að fórna of miklu fyrir það. Þess vegna verjum við mestum tíma í að finna leiðir til að halda verðinu í lágmarki.
Vöruþróunarsérfræðingarnir hjá okkur leita að framleiðendum sem geta framleitt vörurnar á sem hagkvæmastan máta. Hönnuðir okkar vinna alltaf með lausnir sem skila sér í lágu vöruverði og innkaupastjórarnir leita hátt og lágt að besta verðinu og kaupa síðan inn í miklu magni til að fá sem lægsta verðið.
Þú hjálpar síðan til með því að velja sjálf/ur þá vöru sem þú vilt, sækja hana á sjálfsafgreiðslulagerinn, flytja hana heim og setja hana saman sjálf/ur.