
nýtt Teikniforrit fyrir svefnherbergi
Nú er komið út nýtt teikniforrit tileinkað svefnherbergjum. Á sama hátt og í eldhúsforritinu getur þú dregið rúm og PAX fataskápa fram og til baka á grunnteikningunni, skoðað þær í þrívídd, prufað mismunandi útfærslur og liti og svo prentað út teikninguna. Góða skemmtun!
Sækja teikniforrit fyrir svefnherbergi
Teikniforrit fyrir eldhúsið
Að skipuleggja eldhúsið gæti ekki verið einfaldara! Þú getur dregið einingarnar og aukahlutina fram og til baka á grunnteikningunni, skoðað þær í þrívídd, prufað mismunandi útfærslur og liti og svo prentað út teikninguna. Forrit sem auðveldar þér að skipuleggja rýmið.
Sækja teikniforrit fyrir eldhús
Teikningar af eldhúsinnréttingum eru sendar til IKEA til að fá verðáætlun eða ábendingar:
Hægt er að senda okkur teikninguna í tölvupósti. Mikilvægt er að mál séu nákvæm svo teikningin verði rétt. Einnig þarf að passa að helstu upplýsingar s.s. kennitala, nafn og sími komi fram í tölvupóstinum.
Tölvupóstur: eldhus(hja)ikea.is
Teikniþjónusta
Ef þú treystir þér ekki í að setja upp eldhúsið sjálf/ur geturðu haft samband við sérfræðingana okkar sem teikna eldhúsið upp fyrir þig. Sú þjónusta er án endurgjalds og getur tekið allt að 10 dögum að fá teikningu.
Einnig er boðið upp á fríar mælingar á eldhúsinu þínu. Nánari upplýsingar færðu með því að hringja í síma 520 2500 eða senda tölvupóst á netfangið eldhus@ikea.is
Leiðbeiningar til að sækja og setja inn teikniforritin
Smelltu á [Sækja teikniforrit] hnappinn hér fyrir ofan til að sækja forritið.
Smelltu á [save] til að vista teikniforritið á tölvunni þinni og þá opnast gluggi sem biður þig að velja hvar þú villt vista forritið.
Þegar forritið hefur verið vistað, smelltu þá á [open] í glugganum sem birtist eða finndu forritið á þeirri slóð sem það var vistað og tvísmelltu á „nafn skráarinnar“ til að hefja uppsetningu.
Þegar uppsetningu er lokið tvísmelltu þá á skrá sem heitir „KEA kitchen planner“ til að opna teikniforritið og byrja að nota það.
Er vandamál við að sækja eða setja upp teikniforritið?
Hér er nokkuð algengt vandamál sem við ættum að geta hjálpað þér með. Ef þú færð villuboð þegar þú sækir forritið þá getur verið að þú sért með gamla útgáfu af Windows t.d. Windows 98. Þá gæti verið gott að setja upp Microsoft DirectX forritið sem hjálpar þér að sækja og setja upp teikniforritið. Smelltu á slóðina til að sækja forritið: Microsoft DirectX Downloads
Tæknilegar kröfur:
PC tölva með Windows 98, ME, NT, 2000, eða XP Pentium.
Pentium class örgjörvi með að ágmarki 128MB minni (RAM).
30MB af lausu diskplássi á harða disknum.
16MB af Video minni (RAM).
1024x768 punkta skjáupplausn,(XGA) 16 bit litir.