Kanilsnúðar

1 bolli mjólk
2,5 egg
76 gr smjör
5 bollar hveiti
0,5 tsk salt
132 gr sykur
2,5 tsk þurrger

Aðferð:
Þurrgeri og 35° heitri mjólk blandað vel saman og látið standa í 5 mínútur.
Þurrefnum, smjöri og eggjum (allt við stofuhita) bætt við og hnoðað í hrærivél í 5 - 8 mín.
Ath. að deigið á að vera frekar blautt, en þó losna frá hlið hræriskálar.
Smyrjið skál að innan með matarolíu, setjið deigið í og látið hefast á volgum stað
undir rökum klút þar til það hefur nánast tvöfaldast að stærð (40-50 mínútur).

Kanilfylling:
3 bollar púðursykur
2,5 msk kanill
2 bollar smjör

Aðferð:
Hrærið vel saman púðursykri, kanil og bræddu smjöri og kælið niður þar til blandan fer aðeins að stífna.
Stráið hveiti á stórt borð og fletjið deigið út þar til það er u.þ.b  80x45 cm. Ath. að deigið á að vera fremur þunnt.
Smyrjið fyllingunni jafnt yfir allt deigið (ath. að það er smekksatriði hvort öll fyllingin er notuð).  
Rúllið síðan deiginu þétt upp í pulsu og látið sárið snúa niður. Skerið  niður í 20 - 25 snúða með beittum hníf.
Raðið snúðunum í vel smurða ofnskúffu, breiðið yfir þá með heitum rökum klút og látið hefast í 40-50 mínútur. 
Bakist við 180 til 200° hita þar til snúðarnir eru fallega brúnir.

Glassúr:
85 gr rjómaostur
1,5 bollar flórsykur
57 gr smjör
0,5 tsk vanilla
0,06 tsk salt

Aðferð:
Hrærið á mesta hraða í hrærivél í u.þ.b. 5 mínútur.
Sprautið yfir eða smyrjið snúðana á meðan þeir eru enn volgir.  

Ath. að hveititegundir binda mismikið vatn og eins eru egg mismunandi að stærð.
Ef deigið er of blautt má bæta við hveiti, svo auðveldara verði að meðhöndla það.