Glúteinlaus kókos- og möndlukaka
Efra lag:
2 msk smjörlíki
6 msk hunang
4 msk möndlumjöl
2 tsk vanilludropar
2 tsk þurrkaðir ávextir
2 bollar kókosmjöl
2 msk dökkt rísmjöl
2 egg
0,5 tsk lyftiduft
Neðra lag:
handfylli af hökkuðum möndlum
4 msk bláberjasulta
4 tsk hunang
4 msk dökkt rísmjöl
nokkrir möndludropar
Aðferð:
Blandið smjörlíki, möndlumjöli og hunangi vel saman.
Bætið við kókosmjöli, þurrkuðum ávöxtum, vanilludropum og blandið vel saman.
Bætið við eggi og að lokum dökku rísmjöli og lyftidufti.
Setjið blönduna til hliðar.
Blandið vel saman hökkuðum möndlum, sultu, hunangi (má sleppa ef sultan er sæt), rísmjöli og möndludropum.
Smyrjið lítið kökuform.
Hellið möndlu- og bláberjablöndunni í formið og sléttið með skeið.
Hellið kókosblöndunni yfir og sléttið.
Bakið við 180-200°C í 25-30 mín. eða þar til kakan er orðin gullin og bökuð.
Látið kólna í forminu í litla stund. Takið svo úr forminu og látið kólna betur á grind.