200 gr smjör
4 egg
200 gr sykur
1 tsk vanillustöng
100 gr hveiti
100 gr kartöflumjöl
1 tsk lyftiduft
125 gr kókosmjöl
Toppur
200 gr súkkulaði 52%
2 msk smjör
u.þ.b. 2 msk kókosmjöl eða Daim kúlur
Aðferð:
Byrjið á því að bræða smjör.
Þeytið sykur og egg mjög vel saman.
Sigtið hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft saman og blandið því varlega við eggin.
Bætið smjörinu við.
Blandið kókosmjöli varlega saman við.
Setjið deigið í hringform og bakið við 180°C í 50 mín.
Toppur
Bræðið súkkulaði og blandið smjöri saman við, hrærið þar til fallegur glans er kominn á súkkulaðið. Setjið kremið á kökuna og stráið kókosmjöli eða Daim kúlum yfir.