Krækiberjasaft

1 líter krækiberjasaft
750 gr sykur

Aðferð:
Þvoið krækiberin og maukið í matvinnsluvél. Sigtið tvisvar.
Blandið svo sykri saman við kalda saftina og hrærið í við og við þar til sykurinn leysist upp.
Einnig má sjóða upp saftina með sykrinum og hella á heitar hreinar flöskur.
Ath. C-vítamínið skemmist nokkuð við suðuna og einnig við að standa og þegar hrært er í saftinni.
Gott út á hafragraut, grjónagraut og blandað vatni sem svaladrykkur.