
![]() |
Við erum nýtinNORDEN borð úr birki eru frábært dæmi um hvernig IKEA reynir að nýta sem allra mest af hverjum einasta trjástofni. Borðið kom á markað árið 1998 og það var örugglega í fyrsta sinn sem einhverjum datt í hug að nýta kvistótta hluta birkitrésins í húsgagnaframleiðslu í stað þess að nota hann í eldivið eða spónaplötuframleiðslu.
|
|
![]() |
Færri efnasambönd á húðinni þinniVið notum aldrei ljósvirk bleikiefni í vefnaðarvöruna sem notuð er í IKEA sængurföt. Sængurföt mega ekki innihalda hættuleg efni og við reynum alltaf að takmarka notkun viðbættra efna. Við reynum eftir fremstamegni að fylgja ströngustu reglum sem völ er á í öllum þeim löndum sem við störfum. |
|
![]() |
Stórir sófar sem ferðast léttIKEA sófar eru líklega fyrirferðarmestu vörur IKEA sem gerir það að verkum að erfitt er að flytja þá á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. Mörgum sófanna okkar er nú pakkað og þeir sendir og geymdir ósamsettir - sem þýðir að rýmið er nýtt til hins ítrasta og dregið er úr flutningskostnaði. Og IKEA leyfir þér að njóta góðs af sparnaðinum! |
|
![]() |
Sterkt og endingargott en svo miklu léttaraBoard-on-frame (BoF) tæknin er umhverfisvæn tækni sem felst í að vörur eru gerðar úr viðarrömmum sem eru fylltir endurunnum pappír sem líkist vaxköku hunangsflugunnar - samsetning sem valin var vegna þess hve sterk og endingargóð hún er. Afurðirnar eru léttar og hægt er að flytja meira af þeim í einu og þær einfaldari í meðförum, ekki síst fyrir viðskiptavini okkar. |
|
![]() |
Svona verður góð hugmynd enn betriSvipaða board-on-frame (BoF) tækninni, hefur IKEA kynnt til sögunnar board-on stiles(BoS), sem er sterkt og létt efni með afar skilvirkri framleiðsluaðferð. Eins og BoF, eru þessar vörur með pappírsfyllingu sem líkja má við vaxköku býflugunnar, en framleiðsluaðferðin er enn skilvirkari með notkun spónaplatna, trefjaplatna og pappírsfyllingar. |
|
![]() |
Í áttina að betri bómull sem ræktuð er á umhverfisvænni háttVið köllum bómullina í DVALA rúmfötunum „Betri bómull“ en ræktunin er umhverfisvænni og notast við mun minna vatn, áburð og skordýraeitur. Þar að auki er efnið vafið með 15% minna af bómull en er samt eins gott viðkomu og önnur sambærileg rúmföt. |
|
![]() |
LED lætur ljósið skína ... og skína ... og skína ...IKEA leitar stöðugt leiða til að hjálpa þér að spara orku. Líttu til dæmis á sívaxandi úrval okkar af LED ljósum og perum. LED stendur fyrir‚ Light Emitting Diode’, eða ljósgefandi díóða, og sú tegund ljósa hefur verið bylting á sviði lýsingar þar sem tæknin sparar ekki aðeins orku, heldur endast ljósin mun lengur. • Líftími allt að 25,000 klukkustundir (Um það bil 25 ár) |
|
![]() |
Hvað verður um plastið sem þú ferð með í endurvinnslunaHefði þér dottið í hug að gamlar plastflöskur gætu orðið að einhverju sniðugu og flottu? Sumar vörur IKEA eru gerðar úr 100% endurunnu PET plasti. Það hlýtur að vera nógu góð ástæða til að endurvinna vatnsflöskuna þína! |
|
![]() |
Það besta við stólinn er að hann ferðast eins og stjarnaNýja útgáfan af GREGOR stólnum er með niðurfellanlegum stjörnulaga botni sem dregur úr umfangi vörunnar og þannig komast tvöfalt fleiri stólar í hvern gám. |
|
![]() |
Endurnýtt, aftur og afturVið trúum því að endurnýtanlegt efni eigi að fá annað tækifæri - þess vegna bjóðum við upp á vörur úr endurunnum trefjum sem hafa einmitt fengið slíkt tækifæri. Nú hefur þú góða ástæðu til að endurvinna allan þennan pappír og bylgjupappa. |
|
![]() |
Svona nýtir þú sólina við kvöldlesturinnSUNNAN lamparnir ganga fyrir sólarrafhlöðum sem breyta sólarljósi í rafstraum og þarfnast engrar snúru. Þú þarft bara að hlaða rafhlöðuna í 9-12 tíma í sólarljósi utandyra og þá færðu þriggja tíma lýsingu sem þú getur notað hvar sem er innandyra. Frá sumrinu 2009 hefur IKEA Foundation gefið einn SUNNAN lampa fyrir hvern seldan SUNNAN lampa í verslunum IKEA. Þetta hefur gefið börnum sem búa á heimilum án rafmagns færi á að lesa, skrifa og teikna eftir að myrkrið skellur á. Lamparnir hafa hingað til farið til barna á Indlandi og í Pakistan fyrir milligöngu samstarfsaðila okkar, Save the Children og UNICEF. |
|
![]() |
Sparaðu vatn í hvert skipti sem þú skrúfar frá eldhúskrananumÖll IKEA eldhúsblöndunartæki virka þannig að þau spara vatn um allt að 30 prósent. |
|
![]() |
Endurvinnum það straxIKEA trúir því að það skipti máli að aðstoða viðskiptavininn við að gera heimilið sjálfbærara. Til dæmis býður IKEA upp á úrval vara sem hjálpa þér að skipuleggja og flokka endurvinnanlegt efni á skilvirkari hátt. Flokkunarruslafötur fást í mörgum stærðum og eru hannaðar fyrir mismunandi tegundir úrgangs - frá matarúrgangi, glerflöskum og dagblöðum til rafhlaðna – og alls þess á milli. |
|
![]() |
Sparaðu vatn í hvert skipti sem þú skrúfar frá krananum - afturÖll IKEA baðherbergisblöndunartæki eru með þrýstijafnara (Pressure Compensating Aerator) sem getur dregið úr vatnsnotkun um allt að 50 prósent. |
|
![]() |
Ljómandi hugmyndir sem borga sigSPARSAM sparperur eru frábær kostur samhliða notkun á hefðbundnum glóperum. Sparperurnar endast allt að tíu sinnum lengur og orkunotkunin er allt að 80 prósentum minni yfir allan líftíma perunnar. Ein 20 vatta pera gefur eins mikið ljós og 100 vatta glópera án þess að verða nærri því eins heit. IKEA hefur hætt sölu á hefðbundnum glóperum og selur aðeins umhverfisvænni kosti. Viðskiptavinir IKEA geta skilað sparperum í IKEA verslunina og við sjáum um að koma þeim í endurvinnslu. |
|
![]() |
Við losuðum okkur við blýiðÞað er okkur sönn ánægja að geta sagt að IKEA er eitt fyrsta fyrirtækið í heiminum sem hætti alveg að nota blý í spegla, og því fylgir aukakostur: spegilmynd þín verður skýrari þar sem blýlausir speglar búa yfir betri speglunareiginleikum! |
|
![]() |
Vafið frekar en sóaðFjölhæfu NÄSUM körfurnar eru gerðar úr efni sem flestir líta á sem úrgang: afgöngum af bananatrjám eftir uppskeru. Þegar bananatréð hefur borið ávöxt sinn, drepst trjábolurinn hægt og rólega. Í stað þess að henda honum, er hann skorinn í strimla sem skildir eru eftir í sólinni og þurrkaðir. Þegar búið er að vefja NÄSUM körfurnar eru þær styrktar með vatnsþynnanlegu lakki. |
|
![]() |
Já, það er líka lífræntIKEA viðurkennir mikilvægi lífrænnar ræktunar og afurða. Margar vörutegundirnar í vörulínu IKEA FOOD sem seld er í Sænska matarhorninu, er lífræn. Í vörulínunni sem seld er um allan heim eru 20 lífrænar matvörur. Skoðaðu úrvalið í sænska matarhorninu næst þegar þú kemur í IKEA |
|
![]() |
Laust við PVCÞað gleður þig líklega að vita að notkun PVC (poly vinyl chloride) í IKEA vörur hefur verið bönnuð síðan snemma á tíunda áratugnum. Eina undanteknigin er rafmagnssnúrur, þar sem ekkert annað nothæft efni er fáanlegt – enn sem komið er.
|
|
![]() |
Betri suðaMeð IKEA spanhellum færðu nútímatækni á góðu verði. Spanhellur eru segulmagnaðar og þær nota mun minni orku en hefðbundnar hellur. Aðeins pottarnir og pönnurnar hitna þannig að afar lítill hiti fer til spillis. Niðurstaðan er sú að hægt er að spara allt að 40 prósent orku og maturinn eldast mun hraðar. |
|
![]() |
Afgangar endast lengurVissir þú að allt að fjórðungi allra matvæla er hent á mörgum heimilum á degi hverjum? Þar að auki er matvælaframleiðsla orsök um 25 prósenta alls útblásturs koldíoxíðs og um 60 prósenta allrar vatnsnotkunar í heiminum. IKEA matarílátin geyma betur ferskvöru og afganga svo þú þurfir ekki að henda þeim að óþörfu. Það getur lækkað matarreikninginn og minnkað áhrif þín á umhverfið. |
|
![]() |
Ljómandi hugmyndLee, starfsmaður einnar verslunar okkar í Kaliforníu, fann leið til að bæta umbúðir ALÄNG borðlampanna. Lee komst að því að kassann mætti minnka um 30% með því einu að endurraða hlutum lampans. Lee deildi uppgötvun sinni með pökkunartæknimönnum IKEA í Svíþjóð sem síðan ráðfærðu sig við birgjana. Þökk sé frábæru hugviti og samvinnu komast núna 24 ALÄNG lampar á hvert bretti í stað 18 áður. |
|
![]() |
Rektu uppruna kaffibaunanna þinnaAllt kaffi sem IKEA selur hefur UTZ vottun. Það þýðir að þú getur rakið uppruna baunanna allt til plantekranna með þar til gerðum kóða á pakkanum. UTZ vottun er óháð stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni og gefur út staðla fyrir sjálfbæra kaffiræktun og -dreifingu.
|
|
![]() |
Með hverjum bút verður listaverkið fullkomnara og lífsgæðin meiriIKEA PS GULLSPIRA er ein þriggja ólíkra veggskreytinga með myndum af persónum úr skandínavískum ævintýrum. Þær eru afrakstur nýsköpunarstarfs kvenna í indverskum þorpum sem notuðu bútasaumstækni til að sauma þær úr ull og bómull. Hver og ein skreyting er einstök og nafn saumakonunnar er saumað í bak skreytingarinnar á Hindí. Konurnar voru áður hluti af verkefni sem „Samfélagsleg ábyrgð IKEA“og UNICEF hófu árið 2000 og hefur hjálpað yfir 20.000 konum að auka fjárhagslegt og félagslegt sjálfstæði sitt með starfi í sjálfshjálparhópum. |
|
![]() |
Minna af litarefni, fullt af litumÞótt unun sé að horfa á hana og hún geri mikið fyrir húsbúnaðinn, þá er prentuð vefnaðarvara og framleiðsla hennar frek á vatn og litarefni. Í dag er um 40% af allri IKEA vefnaðarvöru framleidd með aðferðum sem krefjast minna af vatni og litarefnum. Tæknin notar ekki aðeins um 60% minna af vatni en hefðbundin tækni, heldur þarf einnig minna af litarefni og efnið verður mýkra. |
|
![]() |
VöruprófunÞú hefur líklega tekið eftir prófunarvélunum okkar í versluninni. Þannig að þú veist líklega að við tökum frumkvæði í að tryggja öryggi og endingu varanna okkar. Vörurnar okkar þurfa einnig að standast ýmis önnur próf - sérstaklega á sviði vöruþróunar. Vöruúrval okkar er gríðarlega mikið og á ári hverju eru gerð þúsundir prófa á IKEA vörum á rannsóknarstofum okkar. Ekki aðeins á þróunarstiginu heldur einnig í framleiðsluferlinu. Þar að auki notum við vottaða þriðja aðila um allan heim. Þess er krafist af IKEA birgjum að þeir láti gera vörupróf á samþykktum utanaðkomandi rannsóknarstofum. |
|
![]() |
IKEA FoodMargt fólk hefur ánægju af IKEA veitingastöðunum og IKEA matvöru á hverjum degi um allan heim. Til að bæta aðbúnað dýra á þeim búum sem IKEA verslar við,hefur IKEA hafið samstarf við samtökin CIWF (Compassion in World Farming (CIWF). CIWF starfar með stærstu matvælaframleiðendum Evrópu og styður aðgerðir sem leiða til áþreifanlegra úrbóta og velferð dýra sem alin eru til matvælaframleiðslu. |
|
![]() |
Ábyrgt laxeldiSem stór söluaðili laxaafurða tekur IKEA, auk allra laxabirgja fyrirtækisins, þátt í the Salmon Dialogue, sem er samstarfsverkefni ólíkra hagsmunaaðila, og því er stjórnað af WWF. The Salmon Dialogue (e. „Laxasamstarfið“) hefur nú komið sér saman um lista af reglum og skilyrðum sem tryggja eiga ábyrgt laxeldi hvort sem litið er til umhverfismála, félagsmála eða fjármála. Stöðlunum er gagngert beint að vissum þáttum laxveiða sem hafa mögulega neikvæðar afleiðingar. Þegar vinnu við staðlana er lokið verða þeir teknir í notkun hjá öllum birgjum okkar sem sjá okkur fyrir laxi. |
|
![]() |
Allt að gerast í eldhúsinu!Nú er hægt að gera margt í einu og spara orku með STABIL eldunarílátunum. STABIL pottainnleggið er hannað til að þú getir gufusoðið á sama tíma og þú sýður og komið þannig meiru í verk á sama tíma og þú sparar bæði orku og vatn. Þú kemur allt að þremur innleggjum á brúnina á fimm lítra potti. Það kallar maður skilvirkni. |