IKEA innkallar belti í ANTILOP og PAX AURLAND rennihurðir.

IKEA biður vinsamlega þá viðskiptavini sem eiga ANTILOP háan barnastól frá framleiðanda númer 17389 og með framleiðsludagsetningar 0607-0911 að hafa samband við þjónustuver IKEA (http://www.ikea.is/thjonusta).
IKEA erlendis hefur fengið tilkynningar um að beltið í stólnum geti opnast við notkun og skapað þannig slysahættu.
Viðskiptavinir sem eiga ANTILOP barnastól eru beðnir að athuga númer framleiðanda og framleiðsludagsetningu sem prentuð eru neðan á sætið.

Ef númer framleiðandans er 17389 og framleiðsludagsetningin er 0607-0911 eru þeir vinsamlega beðnir að fara í Skilað og skipt eða hafa samband við þjónustuver í síma 520 2500 til að fá nýtt belti, þeim að kostnaðarlausu.
Innköllunin nær ekki til annarra IKEA barnastóla.
IKEA biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

IKEA biður viðskiptavini sem eiga PAX fataskáp með AURLAND speglahurð frá framleiðanda nr. 12650 vinsamlegast um að hafa strax samband við þjónustuver (www.ikea.is/thjonustuver). IKEA hefur fengið tilkynningar um að spegillinn geti losnað af hurðinni og brotnað í beittar flísar. Engar tilkynningar hafa borist um slys.PAX AURLAND speglahurðin er framleidd af sama birgi og framleiddi ELGÅ FENSTAD speglahurðina sem nýlega var innkölluð. Rannsókn í kjölfar innköllunarinnar leiddi í ljós að sama vandamál átti við takmarkaðan hluta PAX AURLAND speglahurða. Framleiðsluvikurnar sem um ræðir eru 1039 – 1048. Vörunafnið PAX AURLAND og framleiðsluvikan og númer framleiðandans eru prentuð neðst aftan á speglahurðina.
Viðskiptavinir sem eiga PAX AURLAND speglahurð frá framleiðanda nr. 12650 eru beðnir að hafa samband við Þjónustuver IKEA í síma 520 2500 til að fá leiðbeiningar um hvernig þeir geti fengið nýja hurð, þeim að kostnaðarlausu.
IKEA biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.