Okkar hugsjón

Hvers vegna ...
... er verðið hjá IKEA svona lágt, gæðin svona mikil og hönnunin svona góð?



Hvers vegna búa hönnuðir okkar til verðmiðann fyrst?

Hönnuðir hjá IKEA þurfa alltaf að hafa í huga að þeir eru að hanna gæðavöru á lágu verði.

Þess vegna. 


Hvers vegna framleiðum við svona mikið af öllu?

Með því að láta framleiða fyrir okkur í stóru upplagi, fáum við góðan magnafslátt sem síðan skilar sér í veskið þitt.

Þess vegna. 


Hvers vegna þrjóskast IKEA við að hafa alla pakka flata?

Húsgögnum frá IKEA er pakkað í flatar umbúðir. Það þýðir lægri lager- og flutningskostnað.

Þess vegna.


Hvers vegna förum við illa með vörurnar okkar?

Hjá IKEA eru húsgögn alltaf prófuð samkvæmt ströngum stöðlum til þess að tryggja að þau endist vel og þoli nánast hvað sem er.

Þess vegna.


Hvers vegna er stundum erfitt að fá aðstoð?

Allar nauðsynlegar upplýsingar eru á verðmiðanum. Lesið hann sjálf og sleppið því að borga fyrir hjálp sem þið þurfið ekki.

Þess vegna.


Hvers vegna ætti ég að sjá um að flytja vörurnar heim?

Það er auðvelt að flytja vörurnar frá okkur heim. Þeim er pakkað í flata pakka sem passa annað hvort í skottið eða á toppgrindina á bílnum. Þannig er hægt að sleppa við aukakostnað við heimsendingu á vörunum.

Þess vegna


Hvers vegna þarf ég að setja húsgögnin saman?

Jafnvel þó að það sé stundum snúið þá þarftu þó ekki að greiða fyrir samsetninguna.