UPPSETNING
Fylgið vandlega leiðbeiningum um uppsetningu. Notið ávallt allar meðfylgjandi öryggisfestingar. Skrúfur fylgja ekki. Notið skrúfur sem hæfa veggjum heimilisins. Ef vafamál koma upp varðandi skrúfur og aðrar festingar, leitið þá ráða hjá fagmönnum.
1. Öll gluggatjöld
Gardínubönd, dragsnúrur og bönd á baki gluggatjalda geta verið hættuleg ungum börnum þar sem þau geta flækt sig í þeim. Bönd og dragsnúrur geta einnig vafist um háls barnanna. Komið í veg fyrir að börn nái í gardínubönd og dragsnúrur til að forðast að þau flæki sig í þeim eða vefji þeim um háls sér. Að auki:
1) Notið öryggisfestingar til að halda böndunum föstum og tryggja að börn nái ekki til þeirra.
2) Hafið barnarúm eða önnur húsgögn ekki nálægt gardínuböndum og dragsnúrum
2. Rúllu- og felligluggatjöld 
IKEA gluggatjöldum fylgja öryggisfestingar sem eru sérstaklega ætlaðar til að koma í veg fyrir að börn flækist í gardínuböndum og dragsnúrum.
a) Veggfestingar fyrir rúllu- og felligluggatjöld með dragsnúrum
Lykkjur á dragsnúrum geta verið hættulegar ungum börnum þar sem þau geta flækt sig í þeim og vafið þeim um hálsinn.
- Komið í veg fyrir að börn nái í dragsnúrur.
- Hafið ekki vöggur, leikgrindur eða önnur húsgögn nálægt dragsnúrum. Börn geta klifrað upp á húsgögnin til að ná til dragsnúranna.
- Veggfestingin heldur dragsnúrum á sínum stað og dregur úr hættunni á að börn nái í þær og flæki sig í þeim.
- Komið festingunni fyrir á vegg til að börn geti ekki togað í dragsnúrur og vafið þeim um hálsinn.
IKEA býður viðskiptavinum sem ekki hafa fest upp veggfestingarnar sem fylgja, nýjar festingar þeim að kostnaðarlausu. Vinsamlega hafið samband við Skilað og skipt.
b) Veggfestingar og snúrustopparar fyrir felligluggatjöld með tveimur böndum
Gardínubönd geta verið hættuleg börnum þar sem þau geta flækt sig í þeim. Komið í veg fyrir að börn nái í gardínubönd.
- Komið veggfestingunum fyrir í hæð sem börn ná ekki upp í. Vefjið böndunum ávallt vel um festingarnar.
- Hafið barnarúm, leikgrindur eða önnur húsgögn ekki nálægt gardínuböndum og dragsnúrum. Börn geta klifrað upp á húsgögnin til að ná til gardínubandanna.
- Bindið ekki böndin saman og komið einnig í veg fyrir að þau snúist um hvort annað og myndi lykkju.
Þegar togað er í böndin á baki gluggatjaldanna getur myndast lykkja sem börn geta flækt sig í og vafið um hálsinn.
- Til að draga úr hættu er mikilvægt að stopparar fyrir böndin á baki gluggatjaldanna séu rétt staðsettir.
- Gangið ætíð úr skugga um að stoppararnir séu staðsettir 50 mm fyrir neðan gardínustöngina þegar gluggatjöldin eru í neðstu stöðu
IKEA mælir með því að aðeins séu notuð gluggatjöld án banda í barnaherbergjum og herbergjum þar sem börn sofa.