IKEA og Evrópulöggjöfin um efni og efnasambönd, REACH

IKEA stefnir að því að draga sem mest úr notkun á efnum og efnasamböndum sem geta verið skaðleg heilsu fólks og umhverfinu. IKEA fagnar REACH Evrópulöggjöfinni um efni og efnasambönd, sem er í sama anda og fyrirbyggjandi nálgun IKEA varðandi efni og efnasambönd. Allar IKEA vörur á öllum markaðssvæðum í heiminum eiga að vera í samræmi við takmarkanir REACH löggjafarinnar.

 Viðskiptavinir eiga alltaf að geta treyst því að vörur sem keyptar eru í IKEA séu öruggar og ekki skaðlegar heilsunni. Allar IKEA vörur á öllum markaðssvæðum í heiminum eiga að vera í samræmi við takmarkanir REACH löggjafarinnar. 
Hvar sem því verður við komið er farið eftir ströngum heilsu-, öryggis- og umhverfisreglum hjá IKEA varðandi allar vörur, á öllum mörkuðum. Notkun efna og efnasambanda í vörum okkar er háð takmörkunum sem tilteknar eru í innri stöðlum IKEA. Sú útlistun felur í sér bindandi samning milli IKEA og birgja okkar.
REACH nær yfir ákveðin hættuleg efnasambönd (Substances of Very High Concern, SVHC) sem gætu verið til staðar í vörum eða umbúðum.
IKEA tekur frumkvæði varðandi efni og efnasambönd til að vera skrefinu á undan þegar kemur að stöðlum og reglum. IKEA túlkar reglur og takmarkanir REACH löggjafarinnar um efni og efnasambönd tiltölulega strangt og gengur þannig oft lengra en kröfur REACH gera ráð fyrir. 
IKEA vinnur mikið með efni og efnasambönd og dregur stöðugt úr notkun allra vafasamra efna og efnasambanda. Nokkur dæmi; IKEA ákvað snemma að hætta notkun á PVC (ákveðið 1991) nema í rafmagnssnúrum, einnig var hætt að nota eldhemjandi efni (organic brominates) í húsgögn árið 2000 og 1993 hætti IKEA að nota málningu og lakk sem gefur frá sér formaldehýð.  
Til að fylgjast með að kröfurnar séu uppfylltar framkvæmum við athuganir af handahófi í samvinnu við óháðar og hlutlausar rannsóknarstofur.
IKEA er í stöðugri samvinnu og leggur sitt á vogarskálarnar þegar kemur að formlegu og óformlegu tengslaneti tengdu REACH.
IKEA er fyllilega kunnugt um að REACH löggjöfin gerir þá kröfu til smásala í Evrópusambandinu að svara spurningum viðskiptavina varðandi heilsuspillandi efni og efnasambönd innan 45 daga.
IKEA viðskiptavinir geta áfram treyst því að IKEA vörur séu öruggar og ekki skaðlegar heilsu þeirra.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi IKEA og notkun á efnum og efnasamböndum getur þú sent okkur póst á thjonusta@ikea.is.