Rifsberjahlaup

1 kg rifsber með stilkum og smá laufi. Ath. græn ber þurfa að vera með, þar sem hleypiefnið er í grænu berunum og stilkum.
1 kg sykur

Aðferð:
Berin eru skoluð í köldu vatni og síðan sett í pott ásamt sykrinum.
Hitað að suðu, ekki við of háan hita og hrærið í svo ekki brenni við.
Látið sjóða í 7-10 mín. Ath: Fleytið froðu ofan af sultunni.
Dragið pottinn af hitanum og látið setjast til smá tíma.
Síið saftina frá og hellið á heitar hreinar krukkur.