Saga IKEA

1930
Ingvar Kamprad vinnur í verslun afa síns Carl Bernhard (C.B) Nilsson og lærir inn á heim viðskiptanna.

Viðskiptaævintýri Ingvar Kamprads hefst. Hann kaupir eldspýtnabox fyrir 88 aura og selur þær síðan aftur á 2-5 aura stykkið.


1943
Ingvar Kamprad skrásetur IKEA fyrirtækið. I stendur fyrir Ingvar, K fyrir Kamprad, E fyrir Elmtaryd (nafnið á sveitabæ fjölskyldunnar), og A fyrir Agunnaryd, (nafnið á þorpinu).


1946
„Kúlupennar til sölu“. Allra fyrsta IKEA auglýsingin. Skrifuð af stofnandanum sjálfum.


1948
Fyrsta IKEA vöruhúsið var lítill skúr, smíðaður af Ingvari Kamprad á sveitabæ fjölskyldunnar. Mjólkurbíllinn sótti vörurnar klukkan 06.50 á morgnana og flutti þær á járnbrautastöðina. Þaðan fóru þær síðan til viðskipta­vinanna - þangað til daginn sem mjólkurbíllinn breytti áætlunarleið sinni...

„Nýtt í IKEA“, dæmigerður auglýsingapési sem sendur var reglulega í pósti í lok 5. áratugarins. Hér er verið að auglýsa nýjustu pennana.

Stílhrein og nýtískuleg húsgögn urðu hluti af IKEA vöru­úrvalinu.


1949
IKEA talar til fjöldans í fyrsta sinn - til þeirra sem búa á sveitarbæjunum. Fréttabréf kom út með Swedish Farmer’s Gazette, í 285.000 eintökum.


1950
Opna í „Nýtt í IKEA" gefur góða yfirsýn yfir það sem er í boði.


1951
IKEA vörulistanum er dreift í fyrsta skipti. Hann var ókeypis þá - og er enn í dag.

Hin fullkomni hægindastóll (án arma) fyrir prjónaskap kynntur. 

RUT vörulínan var kynnt.


1953
Þegar Albin Lagerblad húsgagnaverksmiðjan í Älmhult fór í gjaldþrot, keypti Ingvar hana og breytti í sýningaaðstöðu. Þetta var lausn á ákveðnu vandmáli þar sem IKEA hafði einungis boðið upp á pöntunarþjón­ustu fram að þessu. Fyrirtækið var skyndilega statt í miðju verðstríði og samkeppnis­aðilarnir voru farnir að lofa of miklu í bæklingunum, en það setti gæðastuð­ulinn í hættu. Með því að opna sýningar­aðstöðu gátu viðskiptavinirnir borið saman verð og gæði.


1955
IKEA byrjar að hanna sín eigin húsgögn. Hugmyndin um vel hönnuð og hagkvæm húsgögn, sem eru á svo lágu verði að sem flestir hafa efni á þeim, verður til.


1956
Fyrsta ósamsetta varan frá IKEA, LÖVET birtist í IKEA vörulistanum. Hluti af hugmyndafræði IKEA er nú að viðskiptavinurinn setur vöruna sjálfur saman.

Flatar pakkningar þýða lægra flutningsgjald og minni skemmdir sem skilar sér í lægra verði fyrir viðskiptavininn.


1957
Á sjötta áratugnum byrjar IKEA að bjóða upp á mikið úrval húsgagna.


1958
Fyrsta IKEA verslunin er opnuð í Älmhult, Svíþjóð.


1960
Fyrsti IKEA veitingastaðurinn opnar í Älmhult, Svíþjóð.


1961
Fyrsti framleiðandi utan Skandinavíu var staðsettur í Póllandi. Fyrsta verkefni þeirra var að framleiða 20.000 stóla.


1963
Fyrsta IKEA verslunin utan Svíþjóðar opnar í Noregi.


1964
Á sjöunda áratugnum komust tekkhúsgögn í tísku. Þau voru í dökkum lit og voru bæði gamaldags og dýr. En IKEA hann­aði vörulínu úr eik á lágu verði sem var ljós á litin, stílhrein og nútímaleg. Fljótlega breyttu allir um. IKEA hafði haft áhrif á markaðinn og tískuna.

„Eru húsgögn á hærra verði betri en þau sem eru á lægra verði?“, svona hljómaði fyrirsögn í sænsku hönnunarblaði. Blaðið bar saman gæði og verð á húsgögnum frá fimm húsgagna­verslunum, auk þess sem fimm stofur voru innréttaðar með húsgögnum frá sömu aðilum. Útkoman varð sú að IKEA þótti bjóða „vel hönnuð og vel gerð húsgögn á ótrúlega lágu verði!“

Ingvar Kamprad kaupir verslun C.B Nilssons af frænda sínum Walter, C.B. Á landinu byggir hann IKEA hótelið. Við hliðina á IKEA versluninni eru skrifstofuhúsnæði.


1965
Fyrsta verslunin í Stokkhólmi opnar. Hönnun byggingarinnar er í sama stíl og Guggenheim safnið í New York. Á þeim tíma var verslunin stærsta húsgagnaverslun Evrópu.

Nýja verslunin í Stokkhólmi fór fram úr björtustu vonum. Langar biðraðir mynduðust  við afgreiðslukassana og hlaðsvæði verslunarinnar. Starfsmennirnir höfðu ekki undan. Sjálfsafgreiðsla var fyrst prófuð í ljósadeildinni en var fljótt tekin upp í húsgagnadeild­inni. Viðskiptavinirnir gátu núna náð í vörurnar sínar sjálfir og farið með þær á afgreiðslu­kassana. Enn þann dag í dag aðstoða viðskiptavinirnir sig sjálfir í flestum deildum verslunar­innar.

Viðskiptavinir fyrstu IKEA verslunarinnar í Stokkhólmi gátu keypt borðbúnað, eldhúsáhöld og gjafavöru á ótrúlega lágu verði.


1968
IKEA verður hluti af tölvuöldinni og festir kaup á IBM tölvu með 64 KB vinnsluminni - en það þótti ótrúlega mikið á sínum tíma.


1970
Eldur kviknaði í IKEA versluninni í Stokkhólmi. Brunaútsala sem haldin var nokkrum dögum seinna dró að sér mikinn fjölda fólks.


1973
Spónaplötur verða mjög vinsælar í húsgagnaframleiðslu. IKEA fékk efnið frá byggingariðnaðinum sem hönnuð­irnir notuðu síðan á teikniborðinu. Þegar hér var komið sögu var efnið notað í margar af vinsælustu vörutegundirnar.

TAJT sófasettið sýndi vel hugmyndaflugið sem IKEA hönnuð­irnir bjuggu yfir og hvernig IKEA gerði hlutina öðruvísi. Til dæmis var efni úr öðrum iðnaði - gallaefni - notað til að hanna endingargóða vöru á lágu verði.

IKEA seldi píanó, sjónvörp, plötuspilara og líka útvörp.

Fyrsta verslunin utan Skandinavíu opnaði í Spreitenbach, Sviss.


1974
Fyrsta verslunin í Þýskalandi opnar í bænum Eching, rétt fyrir utan München.

Plaststóll varð til í verksmiðju sem framleiddi vatns­fötur. Þetta er bara eitt af fjölmörgum dæmum um frum­legar hugmyndir sem hönnuðirnir í IKEA fá - allt til þess að hanna góða vöru á viðráðanlegu verði.


1975
Mikil fjölgun barnafjölskyldna og nýtt viðhorf gagnvart neyt­endum leiddi til þróunar á barnavænum húsgögnum. Eitt dæmi um slík húsgögn eru sófar með áklæðum sem hægt er að taka af og þvo.

Á áttunda áratugnum hækkaði fura mikið í verði í Svíþjóð. IKEA hélt samt sem áður áfram að hanna gæða hús­gögn á lágu verði í skandinavískum stíl. Þetta var gert mögulegt með því að kaupa kvistótta furu frá Póllandi og Tékkó­slavakíu. Furan varð aðalhráefni áratugarins þar sem húsgögn fyrir nánast allt heimilið voru gerð úr viðnum. KONTIKI er ein af þessum ­línum.

Tími furuhúsgagnanna rennur upp!


1976
Ingvar Kamprad og fjölskylda flytur til Danmerkur.

Yfir­mönnum í Älmhult til stuðnings skrifaði hann Játningar húsgagnasala og Litla orðabók, en  það voru fyrstu handbæk­ur fyrirtækisins.


1978
IKEA setur IVAR hirslueiningarnar á markað. Í fyrstu þóttu þær ekki nógu fínar en brátt kom það í ljós að þessar sniðugu hirslusamstæður gátu gert hvaða herbergi sem var snyrtilegra og hreinlegra.

POEM hægindastóllinn úr krossviði kom á markað. Stóllinn varð seinna að POÄNG.


1979
BILLY verður til!

Farið af stað með KRAFT 80 herferðina í tímaritinu MATCH til að efla einbeitingu og orku. Fyrsta tölublaðið var gefið út þann 31. ágúst árið 1979. Það var prentað á sex tungumálum; sænsku, ensku, þýsku, frönsku, dönsku og norsku. 17 tölublöð voru gefin út.


1980
MARKAÐURINN, ný deild var kynnt til sögunnar. Hún breyttist seinna í SKIPULAG HEIMILISINS.

KLIPPAN sófinn, með lausu áklæði sem hægt er að þvo, kemur á markaðinn. Bæði börn og fullorðnir uppgötva fljótt kosti KLIPPAN sófans.

STEN hirslusamstæðan var hönnuð og framleidd í sögunarverksmiðju þar sem timbrið sjálft var unnið. Slagorðið var „á lægra verði en í timbursölunni“.

IKEA leitaði að nýju efni í húsgagnaframleiðslu. Efnið þurfti að kosta minna en spónaplata eða gegnheill viður, en vera samt létt og endingargott. Lausnin fannst í verksmiðju sem framleiðir venjulega innihurðir.

1979 var alþjóðlegt ár barnsins. Í tilefni af því setti IKEA ný barnahúsgögn og leikföng á markaðinn.


1981
Fyrstu geymslukassarnir hétu SNACK. Síðan þá hafa margir arftakar litið dagsins ljós og hafa þeir verið í öllum regnbogans litum og með alls kyns mynstrum. SNACK var hluti af MARKNADEN vöru­línunni.

Þegar IKEA opnaði sína fyrstu verslun á Íslandi var hún aðeins deild í Hagkaupum í Skeifunni. Vinsældirnar urðu strax miklar og salan fór fram út björtustu vonum.


1982
PATRULL kemur á markaðinn. Heil lína af stórsniðugum vörum sem tryggja betur öryggi barnanna á heimilinu.


1984
STOCKHOLM línan var niðurstaðan af vel hönnuðum vörum samkvæmt ströngustu fyrirmælum. Línan vann hin virtu „Excellent Swedish Design Award“. Árið 2006 var STOCKHOLM línan síðan endurvakin og notuð í nýja vöru­línu í IKEA.


1985
Verksmiðja sem framleiðir innkaupakerrur aðstoðaði IKEA við að búa til MOMENT sófann. Þessi framúrskarandi hönnun vann síðan til verðlauna.

Fyrsta IKEA verslunin opnar í Bandaríkjunum (Philadelphia).

Ný deild var opnuð innan IKEA; skrifstofudeildin. Gefin var út sér bæklingur og var tilgangur deildarinnar að þjóna smærri fyrirtækjum.

IKEA á Íslandi flutti í verslunarrými í Kringlunni og vöru-úrvalið jókst til muna.


1986
Ingvar Kamprad hætti sem forstjóri IKEA og tók heiðurssæti stjórnarformanns í stjórn IKEA. Við tók Anders Moberg.


1987
Ný lína kom á markaðinn. Hún samanstóð til dæmis af málningu, veggfóðri, gólfefni og verkfærum fyrir handverksmenn heimilisins. Línan fékk nafnið IKEA WORKSHOP (IKEA VERKSTÆÐI).


1988
NEXUS eldhúslínan kemur á markað. Hún er úr glær­lökkuðu birki og var ein sú fyrsta af línunum okkar úr þessu efni sem sló í gegn.


1990
Meiriháttar breytingar á stjórnarfari í austur- Evrópu gáfu IKEA kost á að opna verslanir í Varsjá og Búdapest.


1991
Viðarframleiðandinn Swedwood verður hluti af IKEA Group. Þetta varð til þess að mögulegt var að lækka enn frekar vöruverðið og framleiðni jókst til muna.


1993
IKEA – 50 ára ungt!

1994
MAMMUT- Þorir að vera öðruvísi! Fjölbreytt vörulína fyrir börn.

Rekstarkostnaður hafði aukist gríðarlega á milli ára. Anders Moberg ákvað því að skipa 6 vinnuhópa til að finna leið til þess að lækka allan rekstarkostnað. Markmiðið var að ná kostn­aðinum úr 35,7% niður í 30% árið 1996. Þetta verk­efni var kallað „Nytt Läge“ (Ný stefna).

Glæsileg IKEA verslun opnar í Holtagörðum.


1995
KUBIST er ein af fyrstu vegghirslueiningunum sem urðu mjög vinsælar. Gamlar hurðaverksmiðjur í Póllandi voru keyptar og endurhannaðar af Swedwood AB. Hönnun og vöru­þróun fóru fram á verksmiðjugólfinu.

Með IKEA PS línunni fengu hönnuðirnir frjálsar hendur til að skapa eitthvað nýtt og spennandi. Lágt verð var hins vegar algjört skilyrði.

Boðið var upp á nýjar bastvörur sem komu beint frá Austurlöndum í IKEA verslununum.

Húsgögn í sveitastíl komu á markað. Húsgögnin voru í hefðbundnum stíl og pössuðu við aðrar línur í vöruúrvali IKEA.


1996
Margir góðir hlutir úr fortíðinni geta enn verið frábærir í dag. Með þetta í huga kynnti IKEA skandínavísk húsgögn í stíl 18. aldarinnar.


1997
IKEA PS línan var kynnt í vörulistanum.

Barna IKEA verður til.  Þar er að finna vörur sem eru sérstaklega hannaðar fyrir börn – mikilvægasta fólk í heimi!

Swedwood finnur leið til að framleiða spón­lögð húsgögn. Birkispónn á KUBIST og LACK nýtur strax mikilla vinsælda.

IKEA opnar á stað þar sem enginn býr - á internetinu.

Frábært ár í sögu fyrirtækisins! +20% meiri velta og 12% hagnaður eftir skatta. Tekist hafði að minnka allan kostnað - okkur hafði tekist það!

LACK borðið var nú framleitt af Swedwood í Póllandi. Borðið lækkaði í verði og minnkaði örlítið. Borðið birtist á baksíðu vörulistans og salan rauk upp úr öllu.


1998
Basthúsgögnin, blómin, pottarnir og aðrir aukahlutir verða að nýrri deild; SKREYTINGAR HEIMILISINS.

IKEA ákveður að leggja ríka áherslu á börn. Barna IKEA innskoti er bætt inn í vörulistann. Barnasálfræðingar og aðrir sérfræðingar eru fengnir til að taka þátt í hönnun á vörum fyrir börn. Hreyfiþroski, félagslegur þroski og sköpunargáfa eru aðalviðfangsefnin. Síðan hjálpuðu hinir sérfræðingarnir, börnin, okkur við að kjósa bestu vöruna. Niðurstaðan varð skiptiherbergi, sérstakar barnamáltíðir, skemmtilegar stúkur, leiksvæði o.fl. Allt hlutir sem gera IKEA að frábærum stað fyrir börn að heimsækja.

5 mismunandi bækur um hvernig Ingvar Kamprad byggði upp IKEA veldið hafa verið gefnar út. „Leading by design“ eftir Bretil Torekull var gefin út á sænsku, ensku, þýsku, pólsku og ungversku.

Verslun í Shanghai, Kína opnar og gamall draumur rætist. 80,000 gestir mæta á opnunina.

ASKEDAL kemur á markað. Filma er notuð á nýjan hátt sem gefur hurðum og skúffum mýkri áferð. Kirsuberjaáferð og blátt nýtur mikilla vinsælda.

VISDALEN línan var fyrst hönnuð eingöngu fyrir svefn­herbergið. Árið 1998 var línan síðan kynnt ræki­lega í vörulistanum og þá einnig með húsgögnum fyrir borðstofuna.


1999
Ingvar Kamprad þakkar sínu fólki fyrir vel unnin störf. Allur ágóðinn af sölu þessa stóra dags rann óskiptur til starfsmannanna. Sölumarkmið dagsins var hátt, en meiri árangur náðist en ætlað var. Endanleg sala í lok dags var € 85 milljón. Hver einn og einasti starfsmaður fékk sömu upphæð í bónus, hvort sem það var starfsmaður í snarlinu eða forstjórinn. Fyrir marga var þetta á við góð mánaðarlaun.

Fleiri og fleiri voru að eignast tölvur og margir farnir að vinna heima hjá sér. IKEA í vinnunni, var ný lína sem kom til móts við nýjan tíma og breyttar þarfir.

Anders Moberg, forstjóri IKEA Group síðan 1986, lætur af stjórn. Anders Dahlvig ásamt Hans Gydell taka við.

ÄDEL eldhúslínan kemur á markað. Birkiáferðin nær miklum vinsældum á stuttum tíma.

Við þurfum fleiri „pylsutilboð“! ekki bara í Snarlinu heldur líka annars staðar í versluninni okkar. BANG könnurnar voru þær fyrstu. Þær kostuðu 50 krónur stk!

Fyrsta árið þar sem einn vörulisti kemur út fyrir allan Evrópu-markaðinn. Stórt skref í tímasparnaði og kostnaði. Þema vörulistans var „Líf með börnum“.


2000
Fyrsta verslunin í Rússlandi opnar í Khimiki, rétt fyrir utan Moskvu.

NORDEN borðið úr gegnheilu birki kemur á markað.


2001
PAX fataskáparnir eru endurhannaðir. Stærðirnar eru orðnar staðlaðar; 50 cm og 100 cm. Hönnun hefur batnað til muna. KOMPLEMENT aukahlutirnir bjóða frábærar lausnir í fataskápinn.

RAKKE, fyrsti spónlagði fataskápurinn kemur á markað.


2002
Dalahestinum, hefðbundnum sænskum minjagrip, er breytt í nýtískulegan og fallegan hönnunargrip.


2003
IKEA á Íslandi frumsýnir nýja Barnadeild og barnavörur úr svokallaðri IKEA PS línu. Ísland sýnir heiminum hvernig skal standa að „Living with children". Aðilar frá öllum heiminum koma til Íslands til að sjá og upplifa IKEA verslun sem hefur tekið skrefið lengra hvað varðar barnaöryggi og þægindi.


2004
Barna IKEA PS er kynnt til sögunnar.


2005
Verslanirnar eru nú orðnar 229 í 33 löndum. Með samtals 90,000 þúsund starfsmönnum.


2006
IKEA STOCKHOLM, toppurinn í vörulínum okkar er kynnt. Hönnuðirnir okkar eru himinlifandi yfir nýju línunni og henni er vel tekið af viðskiptavinum. Hún lítur út fyrir að vera ofurdýr en samt er hún langt frá því að vera á sama verði og aðrar vörur í sömu gæðum og hönnun sem fást hjá samkeppnis­aðilum okkar.

Aðþjóðlegasta verslunin til þessa; IKEA í Haparanda, opnar. Verslunin er staðsett á milli Svíþjóðar og Finnlands, á svæði sem Rússland og Noregur hafa líka aðgang að.

Vinsældir IKEA á Íslandi höfðu vaxið enn frekar og því opnaði IKEA á Íslandi glæsilega 20.600 fermetra verslun í Kauptúni í Garðabæ þann 12. október 2006. Í fyrsta skipti í sögu IKEA á Íslandi erum við í sérhönnuðu húsnæði til reksturs IKEA verslunar. Öll umgjörð fyrirtækisins breytist svo um munar.


2007
Mjúkdýraherferð, 100kr skipta máli.
IKEA hefur unnið með góðgerðarsamtökum undanfarin ár. IKEA fór af stað með herferð fyrir jólin 2007 í samvinnu við UNICEF. Þá rann € 1 af hverju seldu mjúkdýri til samtakanna. Fyrir jólin 2007 tók IKEA á Íslandi sinn þátt í þessu starfi og  gaf 100,- ísl. til BARNAHEILLA á Íslandi fyrir hvert selt mjúkdýr.

„Most things still
remain to be done.
A glorious future!„

"Við eigum enn eftir að gera flesta hluti. Stórkostleg framtíð!“

Ingvar Kamprad