Skúffukaka

500 gr púðursykur
500 gr hveiti
250 gr smjör (brætt)
2 egg
3 msk kakó
3 dl mjólk
2 tsk lyftiduft

Krem
2 bollar flórsykur
2 msk kakó
1 egg
1/2 bolli smjörlíki
u.þ.b. 1 msk kaffi
Kókosmjöl

 

Aðferð:
Setjið þurrefnin saman í skál og bætið svo öllu hinu við.
Hrærið saman í smá stund.
Setjið í ofnskúffu og bakið á 200° í u.þ.b. 15-20 mín. 

Krem:
Blandið öllu saman og setjið á kökuna þegar hún hefur kólnað. Stráið svo kókosmjöli yfir kremið.