|
Milljónir evra safnast í Mjúkdýraleiðangri IKEA 2011 • 12.4 milljónir evra söfnuðust í Mjúkdýraleiðangri IKEA á heimsvísu fyrir UNICEF og Barnaheill - Save the Children • Þar af söfnuðust 22.594 evrur, eða 3.648.480 krónur, á Íslandi • Viðskiptavinir IKEA á Íslandi gáfu þar að auki 500 mjúkdýr í söfnun fyrir börn á Barnaspítala Hringsins IKEA gefur eina evru fyrir hvert mjúkdýr og hverja barnamáltíð sem seldust í yfir 300 IKEA verslunum um allan heim á tímabilinu 1. nóvember til 23. desember 2011. Við hjá IKEA trúum því að öll börn eigi að hafa aðgang að gæðamenntun. Fjármunirnir sem söfnuðust í Mjúkdýraleiðangrinum verða nýttir til að fjármagna 18 verkefni í 16 löndum á vegum UNICEF og Barnaheilla - Save the Children. Hluti UNICEF rennur til skólastarfs í Afríku, Rússlandi og Kína og hluti Save the Children verður notaður til eflingar menntunar barna úr jaðarhópum (minnihlutahópar og fötluð börn) í Asíu og Austur-Evrópu. Framlagið hjálpar UNICEF og Barnaheilla - Save the Children að þjálfa kennara í barnvænum kennsluaðferðum, sjá börnunum fyrir námsgögnum, endurbyggja skóla og koma upp hreinlætisaðstöðu. |
||
![]() |
||
| Við afhendingu mjúkdýranna sem viðskiptavinir IKEA gáfu Barnaspítala Hringsins og upphæðin sem safnaðist í Mjúkdýraleiðangrinum á Íslandi. Á myndinni eru f.v. Kristín Lind Steingrímsdóttir, markaðsstjóri IKEA, Auður Gunnarsdóttir, sölustjóri húsgagnadeildar IKEA, Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, Bergsteinn Jónsson, fjáröflunarfulltrúi UNICEF, Stefán Rúnar Dagsson, verslunarstjóri IKEA, Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi og verkefnastjóri erlendra verkefna hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi og Ágúst Þórðarson, starfandi framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Chrildren á Íslandi. | ||
|
|
||
|
Hluti mjúkdýranna sem viðskiptavinir IKEA gáfu Barnaspítala Hringsins
|
||
![]() |
||
|
Skjólstæðingur Barnaspítala Hringsins velur sér mjúkdýr.
|