Uppskriftir

Að undanförnu hafa ýmsar uppákomur verið í IKEA sem hafa gefið af sér uppskriftirnar hér til hliðar.

Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir skólastýra Hússtjórnarskólans sýndi sultu- og marmelaðigerð í einni eldhússtúkunni okkar í haust.
Í október kepptu bakarar í kanilsnúðabakstri. Viðskiptavinir völdu uppáhaldssnúðinn sinn með því að setja upphæð að eigin vali í bauk bakarans sem gerði hann. IKEA tvöfaldaði svo upphæðina sem safnaðist og afhenti Grensási alls 864.000 kr.