Úti í sumar 

Nú fer daginn að lengja og sólin að skína. Í hönd fer sá tími ársins þegar hjörtun hitna og fiðringur hleypur í fæturna. Margir verða eins og kýrnar á vorin og vilja vera öllum stundum undir berum himni. Ilmur af nýslegnu grasi og grilli fyllir loftið. Það er gaman að vera til.

IKEA verslunin er komin í sumarfötin og þau hafa sjaldan verið jafnlitrík. Til þess að gera sumarið þitt enn skemmtilegra bjóðum við upp á fjölbreytt úrval af alls kyns vörum til að fegra heimilið þitt og nota úti í sólinni.
Þú finnur meðal annars plastglös og rör fyrir svaladrykkinn, diska og skálar fyrir matinn og hentuga kassa undir nestið í lautarferðina. Grillmeistararnir finna líka ýmis nauðsynleg áhöld eins og tangir, spaða og teina fyrir grillkjötið. Eins og venjulega er gott úrval af fallegum og endingargóðum húsgögnum fyrir garðinn, pallinn eða svalirnar – allt frá fyrirferðarlitlum fellistólum til notalegra sólbekkja. Ef þú vilt verja sumarleyfinu í afslöppum getur þú líka dólað þér í röndóttu hengirúmi. Til að fegra heimilið erum við með úrval af kertum, lugtum, blómum og stórsniðugum blómapottum úr plasti sem springa ekki í íslenskri veðráttu.

Í þessum bæklingi finnur þú brot af sumarvörunum sem við bjóðum upp á. Kíktu í heimsókn og komdu í sumarskap með okkur.  
Gleðilegt sumar!

Smelltu hér til að skoða bæklinginn í vefútgáfu

 

 

.