Veitingastaður IKEA

Ef þig langar í hressingu, heila máltíð eða bara kaffi og með því kíktu þá á úrvalið af heimatilbúnum sænskum réttum á Veitingastað IKEA.

Veitingastaðurinn er vinsæll áningarstaður fyrir fjölskylduna því það getur tekið á að versla! Nú er enn betri ástæða til að staldra við á Veitingastaðnum því nú fá öll börn 12 ára og yngri fría máltíð af barnamatseðli þegar borðað er á staðnum.
Veitingastaður IKEA er opinn alla daga frá 9:30 til 19:30. Morgunverður er alla daga frá 9:30 til 11:00 og heitur matur frá 11:30 til 19:30 alla daga.

Alla daga í IKEA:

- Ókeypis máltíð fyrir börnin! Börn, tólf ára og yngri fá að velja sér einn ókeypis rétt af barnamatseðli.

- Ókeypis kaffi til 11:00

- Frí áfylling á kaffi, te og gosi

- Morgunverður frá 9:30 til 11:00

- Heilsusamlegir réttir

- Fjölbreytt úrval rétta, þ.m.t. sænskir réttir

- Leiksvæði fyrir börnin

- UTZ viðurkennt kaffi, sem er framleitt með fólkið og umhverfið í fyrirrúmi

- Mikil gæði á lágu verði