LÅNGUDDEN
Vaskur, einfaldur,
46x46 cm, ryðfrítt stál

12.900,-

Magn: - +
LÅNGUDDEN
LÅNGUDDEN

LÅNGUDDEN

12.900,-
Vefverslun: Er að klárast

Vaskurinn er úr ryðfríu stáli, sem er endingargott og slitsterkt efni sem er auðvelt að halda hreinu.

25 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.

Undir vaskinum er hljóðeinangrandi efni sem dregur úr hávaða.

Vaskbrúnin á LÅNGUDDEN er örlítið dýpri að aftanverðu þannig að þú getur geymt hluti eins og uppþvottalög og -bursta.

LÅNGUDDEN vaskur, einfaldur

Fróðleikur um vaska úr ryðfríu stáli

Ryðfrítt stál er eitt algengasta efnið fyrir vaska. Það er líka ekkert skrítið því ryðfrítt stál er endingargott efni með fjölda góðra eiginleika sem gerir það að verkum að auðvelt er að viðhalda vaskinum og þar með lengja endingartíma hans.

Hentugur kostur í eldhús

Til að hlutirnir gangi snurðulaust fyrir sig í eldhúsinu þurfa hlutirnir að vera hagkvæmir, auðveldir í umhirðu og hreinlegir. Vaskur úr ryðfríu stáli þolir heita potta og pönnur án þess að það þurfi að hafa áhyggjur af því að það myndist sprungur eða skörð á yfirborðinu. Hann fer einnig vel með gler og postulín sem getur auðveldlega runnið til þegar hjálpsöm börn sjá um uppvaskið. Ryðfrítt stál er líka hreinlegt því ekkert, hvorki blettir eða bakteríur, kemst í gegnum þétt yfirborðið. Þú þarft aðeins á rökum klút og mildri sápu að halda til að þrífa hann.

Rispast vaskar úr ryðfríu stáli?

Eftir að þú byrjar að nota nýja og glansandi vaskinn þinn koma fljótlega litlar rispur í ljós á yfirborðið. Það er fullkomlega eðlilegt og ekkert til að hafa áhyggjur af þar sem það er náttúrulegur eiginleiki stálsins. Efnið mun alltaf fá á sig rispur en þú getur verið viss um að þær eru ekki djúpar. Með reglulegri notkun og meðhöndlun jafnast rispurnar út og verða minna sýnilegri þar sem yfirborðið verður mattara með tímanum.

Hvernig á ég að hirða um vask úr ryðfríu stáli?

Þurrkaðu af yfirborðinu með rökum klút og hugsanlega örlitlu af mildri sápu. Skolaðu vel með vatni og þurrkaðu með þurrum klút til að koma í veg fyrir vatnsbletti. Mundu að þurrka alltaf meðfram trefjamynstrinu til að koma í fyrir að það myndist vatnsblettir þegar hann þornar. Notaðu aldrei stálull, ræstiduft, harða eða beitta hluti sem geta rispað yfirborð stálsins. Með því að hugsa vel um vask úr ryðfríu stáli kemur hann til með að sinna sínu hlutverki vel og líta vel út um ókomin ár.

Sjá meira Sjá minna

Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X