Með snjallvörum úr IKEA verður ýmislegt einfaldara þegar kemur að lýsingu, hátölurum, rúllugardínum og lofthreinsitækjum.
Með því að tengja vöruna við DIRIGERA gáttina opnast fleiri möguleikar og þú getur stýrt henni ásamt öðrum snjallvörum í IKEA Home smart appinu.
Notaðu þráðlausan dimmi til að stýra ljósmagninu, slökkva eða kveikja á allt að 10 ljósum í einu – öll ljósin bregðast við á sama hátt.
Þú getur deyft lýsinguna þráðlaust og aðlagað eftir þörfum.