Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Settu ENHET snaga og SKATTÅN ílát á hillueininguna til að hengja upp handklæði og fá meira hirslupláss.
Það er gott að hafa vask hjá þvottaaðstöðunni, til dæmis til að þvo í höndunum eða fylla/tæma skúringarfötu. Í neðri skápnum er rúmgott geymslurými fyrir stærri hluti.
Þvottakörfurnar eru hentugar fyrir óhreinan þvott og auðvelt er að rúlla þeim um á hjólunum.
Þessi samsetning býður upp á góða blöndu af opnum hirslum fyrir hlutina sem þú vilt geta gripið í og lokuðum hirslum til að fela óreiðuna. Einnig er nóg pláss fyrir stórar pakkningar af þvottaefni og vefnaðarvöru.