Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Borðplatan hentar vel í rými þar sem raki eða bleyta safnast fyrir og er þess vegna sniðug fyrir þvottaaðstöðu inni á baðherberginu.
Settu ENHET snaga og SKATTÅN ílát á hillueininguna til að hengja upp handklæði og fá meira hirslupláss.
Gott vinnupláss og heimilistækin eiga sinn stað. Einnig býður hornið upp á aukið rými til þess að geyma hluti á og vinna á. Þú getur valið hvaða hluti þú vilt fela eða sýna í opnu eða lokuðu vegghirslunni.
Það er gott að hafa vask hjá þvottaaðstöðunni, til dæmis til að þvo í höndunum eða fylla/tæma skúringarfötu. Í neðri skápnum er rúmgott geymslurými fyrir stærri hluti.
Auðvelt er að færa þvottakörfuna því hún er á hjólum. Stækkanleg slá nýtir annars ónotað pláss vel.