VOXNAN
Handklæðaslá,
67 cm, krómáferð

2.190,-

1.990,-

Nýtt lægra verð


Magn: - +
VOXNAN
VOXNAN

VOXNAN

2.190,-
1.990,-
Vefverslun: Til á lager
Allt sem þú þarft til að breyta þessum erilsömu stundum á baðherberginu í algjöru samlyndi. Hefðbundin hönnun og ítarleg smáatriði eins og faldar skrúfur og krómhúð skapa aðlaðandi heildarútlit.
VOXNAN handklæðaslá

Baðherbergið verður smátt og smátt notalegra

Baðherbergið er mikilvægur hluti af heimilinu, þetta eru yfirleitt lítil rými, yfirfull af dóti og samtíningi. Vöruhönnuðurinn Okan Demirci veit af eigin reynslu hve þreytandi lítil baðherbergi geta verið. Þegar vinnan að VOXNAN og BROGRUND baðvörunum byrjaði var markmiðið hans var að auðvelda umgengni allra inni á baðherberginu. Erfiðast var að finna út hvað var nauðsynlegast fyrir sem flesta og þar gat samstarfsfólk Okan aðstoðað.

Komið var af stað vinnusmiðju þar sem mismunandi bakgrunnur, heimili og aðstæður voru kannaðar. Einhverjir voru frá Svíþjóð og lifðu í húsi í skóginum. Aðrir voru frá Ítalíu og Frakklandi. Sumir bjuggu einir, aðrir með maka og börnum.

Samvinna og sameiginleg nauðsyn

Á einum sólarhring kannaði hópurinn í sameiningu hvað þau sem og aðrir vilja að baðherbergið hafi og hafi ekki. Ein þeirra var Luca Battistelli, starfsmaður hjá IKEA sem hefur unnið í innanhúshönnun frá 1992. „Ég er ekki sérfræðingur í vöruþróun en maður býr að reynslu. Einstaklingar og jafnvel þjóðir eru með sínar sérþarfir en það er auðveldara að finna það sem er sameiginlegt en það sem er ólíkt,“ segir Luca.

Smáatriðin skipta máli

Tveir hönnuðir í vinnusmiðjunni tóku þemað og unnu að lausnum, að koma reiðu á óregluna og finna pláss til að geta hengt hluti upp. Handklæðahengin spara nú þegar pláss með snúningsslám, ásamt stækkanlegum slám sem hvetja til snyrtilegra baðherbergis. Hvað með baðherbergi sem margir nota? VOXNAN og BROGRUND gagnast mismunandi aðstæðum og hægt er að nota línurnar saman fyrir aukinn fjölbreytileika. Búnaðurinn er með eins veggfestingum og ef þú vilt breyta útliti baðherbergisins er auðvelt að skipta út búnaði án þess að bora nýtt gat. „Þetta er engin bylting,“ segir Okan, „en smáatriðin geta gert baðherbergið hagkvæmara.

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er ryðfrítt stál?

Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa, Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.

Form/Hönnunarferli

Færir baðherberginu samlyndi, með hverju smáatriði

Eftir heimsóknir okkar um allan heim sáum við að flest baðherbergi eru óskipulögð og í óreiðu. Þetta eru svæði (yfirleitt lítil svæði) þar sem fólk hefur sig til nývaknað á erilsömum morgnum og svefnþrungið á kvöldin. Þegar við hófumst handa við að hanna VOXNAN og BROGRUND fylgihluti í baðherbergi, brá teymið sér út af vananum og skipulagði vinnufund. Með samvinnu varð til þemað -glundroði og samlyndi- og með það að leiðarljósi urðu til vörur sem auðvelda barherbergisstundirnar fyrir alla.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X