Hagkvæmt og endingargott, við ábyrgjumst að varan þoli minnst 10 ár af daglegri notkun. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Veggfestingin auðveldar þrif á gólfum þar sem engir fætur eru fyrir.
Nútímaleg framleiðslutækni ver skúffurnar gegn rakaskemmdum. Þynnan liggur lóðrétt á spónaplötunni svo ekkert vatn kemst að óvörðum brúnum.
Skúffurnar renna mjúklega og er með skúffustoppurum, því er hægt að draga þær alveg út án þess að þær detti úr skápnum.
Skúffurnar eru búnar ljúfloku og lokast því hljóðlega í hvert skipti. Því er engin hætta á klemmdum fingrum.
Þú nýtir rýmið í skúffunum betur því snjöll hönnun vatnslássins leiðir rörin aftast í skápinn.
Auðvelt er að setja skúffurnar saman.
Með vatnssparandi búnaðinum sparar þú vatn og orku í hvert skipti sem þú skrúfar frá blöndunartækinu.
Tvær stórar handlaugar, tvö blöndunartæki og fjórar stórar skúffur, fullkomin lausn fyrir þá sem deila baðherbergi.
Borðplatan setur svip á rýmið en er með snyrtilegu og einföldu yfirbragði sem auðvelt er að para við önnur húsgögn.
Pláss fyrir tannbursta, sápudælu og aðra minni hluti við hlið handlaugarinnar.