Sjálfbærara efni
LUNDSKÄR
Blöndunartæki,
krómhúðað

15.950,-

Energy efficiency class
LUNDSKÄR
LUNDSKÄR

LUNDSKÄR

15.950,-
Vefverslun: Uppselt
Endingargott krómhúðað blöndunartæki með stíhreinu útliti. Vatnssparandi búnaður jafnar vatnsflæðið og hjálpar þér að draga úr vatns- og orkunotkun.
LUNDSKÄR blöndunartæki

Sparaðu vatn á baðherberginu

Í hvert sinn sem þú burstar tennur, þværð hendur, rakar þig eða ferð í bað getur þú gert nokkuð afar mikilvægt - sparað vatn. Þess vegna eru öll blöndunartækin okkar með litlu sigti sem dregur úr vatns- og orkunotkun en heldur sama þrýstingi. Þetta er þó aðeins lítill hluti af stærra verkefni: Að varðveita meira hreint vatn en við notum.

Antony Smith, verkfræðingur frá Englandi, man þegar hann gekk til liðs við IKEA og er hluti af litlu teymi sem þróar vatnskrana og sturtur. „Ég áttaði mig á því að við fylgjum því sem við predikum um sjálfbærni. Það var ánægjuleg áminning, því það þýðir að vinnan okkar skilar sér í sjálfbærni til viðskiptavina,“ segir Antony.

Vatn er verðmætt, ekki sjálfsagður hlutur

Af hverju er mikilvægt að varðveita vatn? Af því að engin lifandi vera lifir af án vatns og ekkert nýtt vatn verður til. Vatn er sífellt endurnýtt en ferskvatnið er ofnýtt, ekki dreift jafnt á milli fólks. Það verður fyrir áhrifum mengunar, spillingar og loftslagsbreytinga. „Þau okkar sem búa þar sem þarf bara að skrúfa frá krananum hugsa mögulega ekki um að spara vatnið, það tekur því sem sjálfsögðum hlut,“ segir Antony.

Hugsað um vatn í hverju skrefi

Bak við tjöldin erum við ávallt að leita leiða til að auka vatnssparnað. Það þýðiur að við útvegum starfsfólki í verksmiðjum okkar og fjölskyldum þeirra hreint drykkjarhæft vatn, tryggjum að vatnið í verksmiðjunni sé hreint áður en við losum það, drögum úr vatnsnotkun við vefnaðarframleiðslu og notum regnvatn til að sturta niður salernum í vöruhúsunum. Nú ætlum við að vinna að nýjum vatnskrönum með nemum og spraututækni, og nýjum sturtum sem nýta vatnið vel. Hver dropi skiptir máli.

Sjá meira Sjá minna

Energy and Resources

Vissir þú að með því að nota vatn skynsamlega getur þú lækkað hitaveitureikninginn og tekið þátt í að draga úr loftslagsbreytingum.

Heitt vatn til upphitunar er 25% af orkunotkun heimilisins. Notkun vatns dregur á skilvirkan hátt úr orkunotkun og um leið úr kolefnislosun. Leitaðu eftir orkumerkingu til að hafa áhrif. Merkimiðinn er með litakóðað kerfi sem sýnir hversu mikla orku og vatn varan notar. Grænar vörur nota minna en rauðar. Nánari upplýsingar er að finna á www.uwla.eu.

Efni

Hvað er látún?

Látún er úr blöndu af kopar og sinki og hlutföllin fara eftir því hvaða eiginleikum óskað er eftir. Kopar er yfirleitt í aðalefnið og því meira af sinki sem þú bætir við hann því sterkari verður hann en einnig verður erfiðara að móta hann og það er meiri hætta á ryði. Hægt er að endurvinna látúnið sem slíkt en ekki sem upprunalegu málmana. Við hjá IKEA notum látún í hnúða, höldur, ramma og blöndunartæki.

Sjálfbærara líf heima

Sparaðu vatnið á barðherberginu

Í hvert sinn sem þú burstar tennur, þværð hendur, rakar þig eða ferð í bað getur þú gert nokkuð afar mikilvægt - sparað vatn. Í blöndunartækjunum okkar er lítið sigti sem dregur úr vatnsnotkun en heldur sama þrýstingi. Þetta er aðeins ein af aðferðum okkar til að varðveita vatn. Við ætlum okkur að verða vatnshlutlaus fyrir 2020, sem þýðir að við munum varðveita meira hreint vatn en við notum. Hver dropi skiptir máli.

Samantekt

People+Planet

Öll blöndunartækin okkar hjálpa þér að spara vatn og sum blöndunartækin eru með kaldavatnsvirkni sem gerir þér einnig kleift að spara orku.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X