SANDLÖPARE
Handklæði með hettu,
70x140 cm, ljósbrúnt/blettatígursmynstur

2.790,-

2790

SANDLÖPARE
SANDLÖPARE

SANDLÖPARE

2.790,-
Vefverslun: Uppselt
Bómull
Ímyndaðu þér að umbreytast í hraðasta dýrið á gresjunni, blettatígur, eftir bað. Handklæðið er með þægilegri hettu og blettatígursandlit – og það er úr bómullar-frotte sem er mjúkt og þægilegt viðkomu.
SANDLÖPARE handklæði með hettu

Stígðu inn í ævintýralegan heim gresjunnar

Heyrir þú í vindinum hreyfa við graslendinu eða fílsöskri í fjarska? Þú ert ekki lengur meðal kettlinga og hunda heldur villtra dýra þar sem aðeins hinir hæfustu lifa af, hvort sem það þýðir að vera góður í að hlaupa, fela sig eða veiða. Taktu ímyndunaraflið með þér og haltu út á gresjuna.

„Með myndunum á SANDLÖPARE línunni vildi ég gefa börnum tækifæri á að uppgötva dýrin smám saman. Villt dýr eru mjög góð í að fela sig og ef þú vilt leika við þau þarft þú fyrst að finna þau,“ segir myndskreytirinn Anna Lagerström.

Leiktu og lærðu með villtum dýrunum

Með SANDLÖPARE línunni verða kollar að sebrahestum, baðhandklæði breytir okkur í blettatígur og mottur eru snákar. Hér kynnumst við heillandi dýrum eins og blettatígrum, gíröffum, jarðköttum og simpönsum bæði í myndum og sem mjúkdýr. Nú getum við farið í öruggan könnunarleiðangur um gresjuna og lært um dýrin sem þar búa án þess að hrófla við viðkvæmum heimkynnum þeirra. „Í samstarfi við myndskreytinn Anna Lagerström og sænsku náttúruverndarmiðstöðina, Nordens Ark, miðar vörulínan að því að hvetja til leiks og kenna börnum meira um dýr í útrýmingarhættu,“ segir vöruhönnuðurinn Anna Edlundh. „Með hjálp frá Nordens Ark getum við tryggt að mjúkdýrin og myndskreytingarnar séu nærri raunveruleikanum.“ „Það er erfitt að útbúa fræðsluefni án texta. En ég held að okkur hafi tekist það með SANLÖPARE leikja- og þrautabókinni. Þar er hægt að læra um vænghaf fuglanna og hvaða fótspor tilheyrir hvaða dýri,“ segir vöruhönnuðurinn Jorge Omar Santoyo Henaine.

Láttu herbergið lifna við

Það þarf ekki mikið til að breyta heimilinu í gresju. Með nýjum rúmfatnaði, áklæði á koll og fallegum límmiðum á veggi og rúmstólpa getur barnaherbergið breyst í dýraríki.

Sjá meira Sjá minna

Hugleiðingar hönnuða

Hönnuður: Anna Lagerström

„Með SANDLÖPARE vörulínunni vildi ég skapa spennandi og litríkan heim þar sem börn geta notað ímyndunaraflið sitt og orkuna til að semja sögur og búa til leiki. Ýmis smáatriði eru vandlega falin í vörunum og það er alltaf eitthvað nýtt til að uppgötva og leika sér með. Börn eru ekki aðeins áhorfendur – þau eru könnuðir og hetjur í ævintýraleit.“

Form/Hönnunarferli

Samstarf við Nordens Ark

IKEA er í samstarfi við Nordens Ark, sjálfseignarstofnun sem einbeitir sér að náttúruvernd, ræktun og frelsun dýra, rannsóknir og fræðslu. Samstarfið hefur fært okkur dýpri innsýn í þær verndunaraðgerðir sem þarf til að varðveita dýralíf. Við styðjum við Nordens Ark með því að fræða bæði börn og fullorðna um dýr í útrýmingarhættu. Með dýrmætri þekkingu þeirra höldum við áfram að þróa nýjar vörur sem vekja upp forvitni um jörðina, náttúruna og öll þau undursamlegu dýr sem hér búa.


Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast