NORDVIKEN/HÖGVED
Borð og fjórir stólar,
152/223 cm, antíkbæsað/birkispónn

124.750,-

84.750,-

Magn: - +
NORDVIKEN / HÖGVED
NORDVIKEN/HÖGVED

NORDVIKEN / HÖGVED

124.750,-
84.750,-
Vefverslun: Er að klárast
NORDVIKEN/HÖGVED borð og fjórir stólar

Nýtt líf fyrir gamlan vin

Anders Adler, einn af vöruhönnuðum okkar, fylltist gleði þegar hann fletti í gegnum skrá uppboðsfyrirtækisins. Þarna var hann – klassískur viðarstóll með rimlabaki frá IKEA sem hafði verið gleymdur í áratugi. Nokkrum árum seinna kynnum við HÖGVED til leiks – uppfærða útgáfu af okkar gamla vin.

Anders er sannur áhugamaður um gamlar IKEA vörur. „Ég hef safnað gömlum vörulistum í mörg ár – þeir eru sannkallaðar gullnámur. Ég hafði séð myndir af þessum viðarstólum en ekki fundið neinn í geymslum okkar eða á uppboðum. Þar til nú.“

Stöðugur léttleiki

Anders bauð í og fékk sex eintök af stólnum. Kannski gætu einn eða tveir fengið pláss á IKEA safninu? En svo tók fagmaðurinn yfir; hann rannsakaði sætishallann, málin og halla fótanna – og líkaði það sem hann sá. „Stóllinn er svo einstaklega léttur en samt stöðugur. Okkur fannst það vera eitthvað sem hægt væri að vinna með, með tilliti til framfara í framleiðslutækni, þekkingu á vinnuvistfræði og pökkunarlausnum á síðustu 50 árum.“ Nýja uppfærslan fékk nafnið HÖGVED. „Við fórum ekki langt frá upprunalega eintakinu en komum honum í minni pakkningu og unnum töluvert í þægindunum í sætinu. Vel mótuð sessan og bak sem tekur utan um þig tryggja að þú sitjir þægilega – hvort sem þú ert lávaxinn, hávaxinn eða þar á milli.“

Stóll sem á sér stað í minningabankanum

Stóllinn með rimlabakinu er klassík í vöruúrvalinu og mikilvægur hluti af skandinavískri arfleifð okkar. Á sama tíma er hann hlutlaus og nægilega tímalaus til að passa með mörgum stílum og tímabilum. Þegar Anders var að horfa á gamlar myndbandsupptökur frá því hann var barn sá hann eitthvað kunnuglegt. „Ég sat á þessum stól í eldhúsinu! Mér finnst skrítið að ég muni ekki eftir því að hann hafi verið á heimilinu en það hlýtur samt að hafa fylgt mér.“

Sjá meira Sjá minna

Svipaðar vörur

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X