ARV BRÖLLOP
Tertudiskur með loki,
29 cm, glært gler

3.490,-

Magn: - +
ARV BRÖLLOP
ARV BRÖLLOP

ARV BRÖLLOP

3.490,-
Vefverslun: Til á lager
Taktu fram tertuna, ostinn eða ljósaseríuna. Hvað sem þú setur undir lokið verður það aðeins hátíðlegra. Lokið heldur einnig flugum og ryki frá góðgætinu.

Efni

Hvað er gler?

Gler er að mestu úr sandi, natróni og kalki sem er brætt á háum hita. Hægt er að herða glerið eða bæta við það mismunandi aukaefnum til að gera það einstaklega sterkt og höggþolið og í sumum tilfellum má jafnvel taka það úr frysti og setja beint í heitan ofn án þess að það springi. Stór kostur við glerið er að það er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess að það tapi gæðum. Það þarf líka minni orku til að bræða endurunnið gler en til að framleiða nýtt gler. Markmið okkar er að nota eingöngu endurunnið gler í vöruvali okkar í framtíðinni.

Hugleiðingar hönnuða

Sissa Sundling, hönnuður

„Hvatinn að ARV BRÖLLOP línunni eru brúðkaup og allt í kringum þau – útsaumaðir kjólar, silfur og blúnda, rómantík og draumar. Og auðvitað líka ást. Þetta allt má sjá í yndislegum blómamynstrum, hvítu postulíni og léttum glösum. Vonandi mun línan einnig þjóna sem fallegur minjagripur um mjög sérstök og hamingjurík tilefni í þínu lífi. Kannski verður hún líka að erfðagrip, þar sem hefðir og minningar fjölskyldunnar ganga áfram mann af manni.“


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X