Þú getur valið hvort þú sitjir eða standir – hvort sem þér finnst þægilegra þegar þú borðar, vinnur, lærir, undirbýrð matinn, hugsar um kryddjurtirnar þínar, spjallar við vini eða hvað annað sem þér dettur í hug að gera við borðið.
Bættu við snögum, hangandi hirslum og ílátum á grindina fyrir það sem þú vilt hafa við höndina.
Sterkbyggt, endingargott og auðvelt að halda hreinu, með grind úr sterku stáli og sléttri melamínhúðaðri borðplötu með dökkri viðaráferð.
Notalegur skemill auðveldar þér að koma þér í þægilega stellingu á meðan þú situr.
Hægt að stafla, þú getur haft nokkra við höndina án þess að þeir taki meira pláss.