Þú þarft engin tól til að setja saman stólinn. Þú einfaldlega smellir honum saman með einföldum búnaði undir sætinu.
Með aukaplötum getur þú breytt stærð borðsins þannig að það passi fyrir 4, 6 eða 8. Ef þú bætir sæti við hvora styttri hliðina komast allt að 10 manns fyrir.
Aukaplöturnar tvær eru geymdar undir borðplötunni og það er jafn auðvelt að setja þær upp og setja þær aftur niður þegar gestirnir eru farnir.
Borðfæturnir og grindin eru úr endingargóðu duftlökkuðu stáli.
Svarbrún borðplatan er með spónalagi úr harðvið sem er bæsað og lakkað til að auka endingu og gera viðarmynstrinu kleift að skína.
Tylltu þér og vertu með um stund – notalegar rúnnaðar útlínur og sveigjanlegt efni gera stólinn fallegan og þægilegan.
Viðartrefjablandan gefur stólnum áferðarmikið matt yfirborð sem er mjúkt og þægilegt viðkomu.
Úr fjarska falla viðartrefjarnar inn í yfirborðið en þegar komið er nær grípa þær augað og vekja athygli.