LED ljósaperur eru bæði orkunýtnar og endingargóðar og líftíminn er um 15.000 klst. Þær hafa því tvo eiginleika sem gera þér kleift að spara, bæði í peruskiptum og rafmagni.
LED ljósaperan gefur frá sér sömu hlýlegu birtuna og hefðbundin 14 W ljósapera – en án þess að flökta eða gefa frá sér hljóð. Það er einmitt það sem þú þarft til að skapa notalega stemningu í rýminu.
Litendurgjafargildi (CRI) ljósaperu gefur til kynna hversu vel ljósið sýnir liti á réttan hátt. Gildi yfir 80 er gott og í nálægð við náttúrulega birtu.
LED ljósaperur fást með mismunandi ljóshitastigi sem gerir birtuna ýmist hlýrri eða kaldari. Ljósaperan gefur frá sér sama hlýja bjarmann og kertaljós (1.800 Kelvin).
Lýsir strax á fullum krafti þegar kveikt er á ljósinu.
Ekki er hægt að nota ljósaperuna með ljósdeyfi.
Hver skrautpera er munnblásin – það gefur þeim einstakt útlit.
LED lýsing notar allt að 85% minna af orku og endist um tíu sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Þessi einstaka LED skrautpera hentar vel sem innflutningsgjöf.