Nýtt lægra verð
NISSAFORS
Hjólavagn,
50.5x30x83 cm, ljósgrænt
Staðsetning í verslun
Gangur 57
Bil K
Fyrra verð: 5.450,-
4.950,-
Magn: - +
NISSAFORS
NISSAFORS

NISSAFORS

5.450,-
4.950,-
Vefverslun: Til á lager
Vagninn er meðfærilegur, rennur mjúklega og passar í þröng rými. Stílhrein málmgrindin og opnu hillurnar gera hann tilvalinn fyrir eldhúsáhöld, blöð og penna eða aðra hversdagslega nauðsynjamuni.

Hugleiðingar hönnuða

Ebba Strandmark, hönnuður

„NISSAFORS hjólavagninn er lítil hetja sem passar hvar sem er. Hann er innblásinn af borgarlífsstíl þar sem pláss er oft takmarkað og það þarf stöðugt að endurraða hlutunum til að skapa meira pláss. Stílhrein málmgrind og opnar hillur gera hann fjölhæfan og það er auðvelt að koma honum fyrir – hvort sem það er við skrifborðið, í eldhúsinu eða á baðherberginu. Einfaldur og snjall – og algjörlega ómissandi.“

Eiginleikar

Vantar þig þægilega hirslu? Prófaðu þá hjólavagn!

Það er auðvelt að rúlla þeim hvert sem er fyrir allt það sem á hvergi „heima“. Hvort sem þú geymir í þeim krydd í eldhúsinu, föndurdót, smáhluti eins og lykla og hleðslutæki í forstofunni eða hárskraut sem fær loksins heimilið sem það á skilið. Settu einn við hliðina á uppáhaldshægindastólnum með kaffibolla – og þú færð notalegt kósíhorn. Fjölhæfir, þægilegir og alltaf tilbúnir að hjálpa!

Efni

Hvað er stál?

Stál hefur þá einstaka eiginleika að þó að það hafi verið teygt og mótað þá heldur það styrk sínum. Það er notað til að styrkja allt frá skýjakljúfum og bílum að rúmgrindum og útihúsgögnum. Stáliðnaðurinn hefur verið að stefna í átt að orkunýtnari framleiðslu og betri gæðum. Stál tapar ekki eiginleikum þegar það er endurunnið og í dag er það eitt af þeim efnum sem mest er endurunnið í heiminum.


Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast