Efnið í vörunni er öruggt fyrir dýr og laust við skaðleg efni.
Hundar og kettir eru hluti af fjölskyldunni – og heimilinu. UTSÅDD vörulínan er hönnuð til að gera líf gæludýranna þægilegra, auðveldara og skemmtilegra.
Það er bæði skemmtilegt og nauðsynlegt að leika sér. Leikur veitir útrás.
Njóttu þess að leika við hundinn þinn. Þú og hundurinn öðlist betri tengingu þegar þið leikið ykkur.
Það er auðvelt að halda UTSÅDD hundaleikfanginu hreinu þar sem það má fara í þvottavél.