5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Stilling til að halda heitu gerir þér kleift að halda matvælunum heitum án þess að þau ofeldist og brenni.
Blásturinn dreifir hitanum fljótt og vel um allan ofninn og gerir þér kleift að elda og baka marga rétti í einu án þess að það hafi áhrif á bragð.
Auðvelt að setja upp í þægilega vinnuhæð, í grunnskáp eða háan skáp.
Brauð- og pizzustilling gera brauðmetið fallega brúnt að utan og pizzubotninn stökkan.
Undir- og yfirhiti til að fá stökka áferð á ofnrétti og hægelda pottrétti.
Sjálfhreinsistillingin auðveldar þér að hreinsa ofninn þar sem fita og óhreinindi brenna til ösku sem auðvelt er að sópa í burtu.
Með innbyggðum kjöthitamæli með hitaskynjara er hægt að elda allar tegundir af kjöti fullkomlega án þess að þurfa að fylgjast með elduninni.
Einstaklega rúmgóður ofn með pláss fyrir fimm grindur sem tryggir að nægt pláss sé fyrir það sem þú vilt elda.
Þú getur auðveldlega valið bestu grillstillinguna til að elda þunnar kjötsneiðar og grænmeti eða til að brúna gratín og steikur.
Bakstursstilling gerir það sem þú bakar sérstaklega mjúkt og bragðgott.
Hraðhitun hitar ofninn fljótt.
Þegar gufu og heitu lofti er blandað saman færðu ákjósanlegt raka- og hitastig til að matvælin verði mjúk og safarík að innan og stökk og brúnuð að utan.
Tvö pör af útdraganlegum brautum auðvelda þér að setja í ofninn og taka úr honum á öruggan hátt.
Forstilltar eldunarstillingar auðvelda þér að velja réttar stillingar fyrir mismunandi matvæli og uppskriftir.
Þú getur geymt og uppfært uppáhaldsuppskriftirnar þínar í minni ofnsins, ásamt réttu hitastigi og eldunartíma.
Snertirofinn og stóri, þægilegi takkinn eru báðir vinnuvistvænir og auðvelda bæði notkun og þrif á ofninum.
Hraðgrill gerir þér kleift að grilla, brúna og elda stærri rétti og steikur í gegn.
Sérstakar stillingar gera þér kleift að þurrka og varðveita matvæli, sótthreinsa ílát og stýra hvernig deig hefast.
Hitaeinangrandi ofnhurð úr fjórföldu gleri með barnalæsingu eykur öryggið í eldhúsinu.
Hurðin er með ljúfloku og skellist því ekki með látum og tryggir á sama tíma að matvælin hristist ekki til.